Sjálfbærni og samfélagsábyrgð
Þrjár meginstoðir sjálfbærrar þróunar eru: vernd umhverfisins,félagsleg velferð og efnahagsvöxtur, en mikilvægt er skoða þessar þrjár stoðir heildrænt þegar leitast er við að hámarka efnahagslega og félagslega velferð án þess að skaða umhverfið.
Fréttir tengdar sjálfbærni
Sjálfbærni
Fréttir29.11.2023
Landsvirkjun og CRI hrepptu Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2023
Lesa meiraMyndbönd tengd umhverfismálum
hvað er á döfinni?
24. nóvember 2025
24. nóvember
kl. 09:00 - 11:30

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2025
Umhverfisdagur atvinnulífsins 2025 verður haldinn í tíunda sinn mánudaginn 24. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica kl. 09:00 - 11:30 undir yfirskriftinni Frá yfirlýsingum til árangurs. Dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku. Kastljósinu verður beint að gagnsæi, trúverðugleika og samkeppnishæfni í loftslags- og umhverfismálum. Í kraftmikilli dagskrá leiðir áhrifafólk í atvinnulífi, stjórnmálum og stjórnsýslu saman hesta sína. Dagurinn er byggður upp af tveimur lotum. Fyrri lotan tekur á gagnsæi sem forsendu trúverðugleika. Erindi: Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA. Pallborð: Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku stjórnar pallborði. Innslög frá fyrirtækjum: Eiríkur Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Landfara og Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar Síðari lotan fjallar um samkeppnishæfni Íslands í ljósi umhverfisstefnu ESB. Erindi: Ágústa Ýr Þorbergsdóttir, meðeigandi KREAB. Pallborð: Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Vigdís Diljá Óskardóttir, stjórnandi samskipta- og samfélagsmála hjá Alcoa Fjarðaáli, Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskipafélags Íslands. Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku stjórnar pallborði. Innslög frá fyrirtækjum: Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags- og áhrifastýringar hjá Landsvirkjun, Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2025 Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra veitir hin árlegu Umhverfisverðlaun atvinnulífsins sem verða nú veitt í tíunda sinn fyrir: • Umhverfisfyrirtæki ársins 2025 • Umhverfisframtak ársins 2025 Auk þess sem veittar verða viðurkenningar til fyrirtækja sem hafa unnið frábært starf á sviði umhverfismála. Sigríður Margrét Oddsdóttir setur daginn og flytur lokaorð.
Umhverfismál
