Sjálfbærni og samfélagsábyrgð

Samtök atvinnulífsins trúa að atvinnulífið eigi verkefni fyrir alla og héldu áfram að beina sérstökum sjónum að jafnrétti og fjölbreytileika í íslensku atvinnulífi á árinu. Atvinnulífið nýtur góðs af fólki með mismunandi bakgrunn og af ólíkum kynjum og við viljum efla gagnrýna hugsun og fá að heyra fjölbreytt, uppbyggileg sjónarmið.

Fimm hendur frá mismunandi fólki liggja hlið við hlið á borði
Hvatningarverðlaun jafnréttismála

Árlega koma SA að því að veita Hvatningarverðlaun jafnréttismála sem er ætlað að vekja jákvæða athygli á fyrirtækjum sem sett hafa jafnrétti á oddinn. Um leið er ætlunin að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama.

Vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök atvinnulífsins og Háskóli Íslands standa að verðlaununum (Vörður og Samkaup hljóta Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2021).

Það er alveg ljóst að mikið verk er óunnið þegar kemur að jafnrétti. Samtök atvinnulífsins munu áfram taka þátt í að varða leiðina að frekari árangri á því sviði. Þá eru verkefnin sem bíða ekki aðeins til staðar inni á vinnustöðunum heldur þarf atvinnulífið að leggja sitt að mörkum ásamt hinu opinbera. Raunar þarf allt samfélagið að taka þátt til þess að tryggja nauðsynlegar breytingar. Í því getur meðal annars falist rýmkaður opnunartími leikskóla, lokun á umönnunarbili ungra barna og skipulag skólakerfisins.

Fimm aðilar með blóm og viðurkenningar

Samkaup og Vörður hlutu hvatningarverðlaun jafnréttismála árið 2021.

Atvinnulífið á verkefni fyrir alla

Blásið var til sérstakrar vitundarvakningar og átaks sem snýr að því að veita einstaklingum með skerta starfsgetu tækifæri til starfa. Á landsþingi Landssamtakanna Þroskahjálpar sem haldið var undir yfirskriftinni „Göngum í takt!“ flutti Ásdís Kristjánsdóttir, þá aðstoðarframkvæmdastjóri SA, erindi um atvinnumál fatlaðs fólks. Meðal umræðuefna ráðstefnunnar voru samfélagsleg ábyrgð, brúun bilsins milli náms og atvinnu og reynsla fatlaðs fólks af vinnumarkaði.

SA stóðu fyrir vel heppnuðum fundi með Þroskahjálp, ÖBÍ og félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu um hvernig skal bryggja brýr milli fólks með skerta starfsgetu og atvinnulífsins. Í erindum fundarins kom fram að ljóst væri að samvinna og samstaða væri lykilatriði til að auka tækifæri fatlaðs fólks á vinnumarkaði.

Fullur salur af fólki hlusta á fyrirlesara

SA stóð fyrir fyrir fundi með Þroskahjálp, ÖBÍ og félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu.

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna

Samtök atvinnulífsins (Global Compact) ásamt Nasdaq Ísland (Kauphöllin), UN Women Íslandi og Félagi kvenna í atvinnulífinu (FKA) stóðu að hátíðlegri athöfn í Hörpu þann 7. mars 2022 þar sem Eliza Reid, forsetafrú, hringdi bjöllu í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars.

Þema dagsins var „Gender Equality Today for a Sustainable Tomorrow“ sem vísar í framlag kvenna og stúlkna um allan heim í baráttunni gegn loftslagsbreytingum í átt að sjálfbærari framtíð.

Úlf Nielsen, prófessor í fjármálum við Háskóla Íslands og Copenhagen Business School, Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA, Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women, Eliza Reid, forsetafrú, Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA og Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland.

Eliza Reid var heiðursgestur og hélt stutt erindi um stöðu Íslands og ítrekaði að þó að við séum komin lengra en margar aðrar þjóðir, þá sé margt sem hægt er að bæta er kemur að kynbundnu ofbeldi, hlutfalli kvenna í stjórnendastöðum, launamun kynja, fjárfestingum í frumkvöðlastarfsemi, þriðju vaktinni, stöðu kvenna af erlendum uppruna o.fl.

Eliza Reid, forsetafrú, hringir kauphallarbjöllunni ásamt Magnúsi Harðarsyni, forstjóra Nasdaq Iceland, í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna.

Ring the Bell for Gender Equality

Myndband frá United Nations Global Compact.