Vinnumarkaður - 

25. janúar 2023

Vinnudeilusjóður SA þétt að baki Íslandshótelum

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Vinnudeilusjóður SA þétt að baki Íslandshótelum

Vinnudeilusjóður áréttar fullan stuðning við Íslandshótel

Á fundi stjórnar Samtaka atvinnulífsins (í gær) var áréttaður fullur stuðningur samtakanna við Íslandshótel vegna þeirra fordæmalausu verkfallsaðgerða sem Efling beinir nú að fyrirtækinu. Engin rök hafa verið færð fyrir því af hverju Efling beinir spjótum sínum einungis að einum rekstraaðila í ferðaþjónustu og ætlist til að 280 Eflingarfélagar leggi einir niður störf til að ná fram kjarasamningi fyrir 21 þúsund félaga Eflingar.

Stuðningur SA felur m.a. í sér að vinnudeilusjóði samtakanna verður heimilt að greiða Íslandshótelum allt tjón sem af vinnustöðvun hlýst, komi hún til framkvæmda. Eignir vinnudeilusjóðs SA eru um fimm milljarðar króna og sjóðurinn er meðal annars hugsaður til að bregðast við skæruverkföllum og ef gripið er til ómálefnalegra aðgerða gegn aðildarfyrirtækjum samtakanna.

Samtök atvinnulífsins fordæma að aðgerðir Eflingar eigi að beinast gegn einu fyrirtæki. Það sé í andstöðu við anda viðtekinna leikreglna á vinnumarkaði. Samtök atvinnulífsins hafa þegar undirritað kjarasamninga við 18 aðildarfélög SGS, VR, LÍV, stéttarfélög iðn- og tæknifólks auk fjölda annarra stéttarfélaga með samtals yfir 90 þúsund félagsmenn. Samningarnir hafa að jafnaði verið samþykktir með 85% greiddra atkvæða og þannig markað launastefnu til næstu 15 mánaða sem Samtök atvinnulífsins geta ekki og munu ekki hvika frá.

Tengt frétt

Brú að bættum lífskjörum fyrir 80.000 manns
Lesa meira

Samtök atvinnulífsins