Fréttir - 

25. janúar 2021

Skráning hafin á Menntadag atvinnulífsins

Menntamál

Menntamál

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Skráning hafin á Menntadag atvinnulífsins

Menntadagur atvinnulífsins fer fram 4. febrúar 2021 en þetta er í áttunda sinn sem dagurinn er haldinn. Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.

Menntadagur atvinnulífsins fer fram 4. febrúar 2021 en þetta er í áttunda sinn sem dagurinn er haldinn. Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.

Skráning 

Á menntadaginn fer fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fram með rafrænum hætti. 

Meðal innslaga í þættinum eru:

  • Greiningar- og nýsköpunarhæfni
    Finnur Oddsson, forstjóri Haga
  • Virkni í námi og námsaðgerðum
    Ingvi Hrannar, kennari og frumkvöðull
  • Lausnamiðuð nálgun
    Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
  • Gagnrýnin hugsun og greining
    Kristín Friðgeirsdótir, alþjóðlegur stjórnendaráðgjafi
  • Sköpun, frumleiki og frumkvæði 
    Dóra Jóhannsdóttir, leikkona
  • Forysta og félagsleg áhrif
    Tryggvi Þorgeirsson, 
    meðstofnandi og forstjóri Sidekick Health
  • Tækninotkun, eftirlit og stjórn
    Anna Kristín Pálsdóttir, Marel – framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar
  • Tæknihönnun og forritun
    Ægir Már Þórisson Advania, forstjóri Advania
  • Seigla, streituþol og sveigjanleiki
    Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
  • Rökhugsun, lausn vandamála og hugmyndaauðgi
    Stefanía G. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Eyrir Vöxtur hjá Eyri Venture Management

Menntatorg atvinnulífsins verður á sínum stað undir stjórn Söru Daggar Svanhildardóttur, verkefnastjóra mennta- og fræðslumála SVÞ og líflegar umræður um menntamál Íslendinga í víðu samhengi setja svip sinn á þáttinn.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA stýrir þætti.

Það verður forvitnilegt að sjá hvaða fyrirtæki bætast í hóp þeirra fyrirtækja sem hafa hlotið menntaverðlaun atvinnulífsins til þessa. Orkuveita Reykjavíkur var menntafyrirtæki ársins 2020 og Samkaup menntasproti ársins 2020. 

Tengt efni:

Glefsur úr Menntadegi atvinnulífsins 2020 í Sjónvarpi atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins