08. maí 2025

Kjarasamningar útskýrðir fyrir stjórnendum í ferðaþjónustu

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Kjarasamningar útskýrðir fyrir stjórnendum í ferðaþjónustu

Samtök atvinnulífsins og Samtök ferðaþjónustunnar standa fyrir tveimur sérsniðnum fræðslunámskeiðum um kjarasamninga í ferðaþjónustu á næstu dögum. Námskeiðin eru sérstaklega ætluð þeim sem bera ábyrgð á ráðningum og starfsmannamálum – stjórnendum, rekstraraðilum og mannauðsfólki í greininni.

Fræðslunámskeið um kjarasamning leiðsögumanna
14. maí kl. 9:00 - 10:30

Fyrra námskeiðið verður haldið þriðjudaginn 14. maí kl. 9:00–10:30 í Hyl, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, en einnig verður í boði að taka þátt í gegnum Zoom.

Á námskeiðinu fer Guðmundur H. Guðmundsson, lögmaður á vinnumarkaðssviði SA, yfir helstu atriði kjarasamnings leiðsögumanna og þau málefni sem launagreiðendur þurfa að hafa í huga. Fjallað verður m.a. um:

  • ráðningarsamninga og ráðningarferli,
  • réttindi í veikindum og orlof,
  • uppsagnir og starfslok.

Að lokinni yfirferð verður opið fyrir spurningar frá þátttakendum.

Skráning fer fram hér.

Fræðslunámskeið um kjarasamninga í ferðaþjónustu
19. maí kl. 14:00 - 16:00

Seinna námskeiðið verður haldið sunnudaginn 19. maí kl. 14:00–16:00, einnig í Hyl í Húsi atvinnulífsins og á Zoom.

Lögmenn SA munu þar kynna helstu atriði kjarasamninga sem gilda um starfsfólk í ferðaþjónustu. Fjallað verður um samninga SA við:

  • Eflingu og Starfsgreinasambandið (almenn störf í ferðaþjónustu),
  • VR (gestamóttaka og afþreyingarfyrirtæki),
  • Matvís (matreiðslumenn og faglærðir þjónar).

Námskeiðið spannar hagnýt atriði allt frá ráðningum til starfsloka og veitir góða innsýn í skyldur og réttindi samkvæmt kjarasamningum. Einnig verður gefinn tími fyrir spurningar.

Skráning fer fram hér.

Við hvetjum öll fyrirtæki í ferðaþjónustu til að senda forystufólk og þá sem koma að ráðningum og launamálum á þessi gagnlegu námskeið. Góð þekking á kjaramálum styrkir bæði rekstur og starfsumhverfi.

Samtök atvinnulífsins