28. janúar 2022

Heimsmarkmiðasjóður Sameinuðu þjóðanna

Sjálfbærni

Sjálfbærni

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Heimsmarkmiðasjóður Sameinuðu þjóðanna

Umsóknarfrestur er til 3. febrúar

Utanrikisráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum í Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífsins.

Tilgangur sjóðsins er að vinna að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna með þvi að styðja við eflingu atvinnu- og viðskiptalífs í þróunarlöndum. Um leið gefst fyrirtækjum tækifæri til að efla samkeppnishæfni sína á þessum framtíðar mörkuðum.

Sérstaklega er hvatt til þess að verkefni stuðli að kynjajafnrétti og að jákvæðum umhverfis- og loftslagsáhrifum.

Núverandi umsóknarfrestur er til 3. febrúar. Næstu umsóknarfrestir verða 3. mai og 3. október.

Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna hér , fyrirspurnir um sjóðinn má þá senda á atvinnulifssjodur@utn.is . Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér sjóðinn.

Samtök atvinnulífsins