24. Nóv

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2025

Hero icon

dags

24. nóvember 2025

tími

kl. 09:00 - 11:30

staður

Hilton Reykjavík Nordica

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2025 verður haldinn í tíunda sinn mánudaginn 24. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica kl. 09:00 - 11:30 undir yfirskriftinni Frá yfirlýsingum til árangurs. Dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku.

Kastljósinu verður beint að gagnsæi, trúverðugleika og samkeppnishæfni í loftslags- og umhverfismálum. Í kraftmikilli dagskrá leiðir áhrifafólk í atvinnulífi, stjórnmálum og stjórnsýslu saman hesta sína.

Dagurinn er byggður upp af tveimur lotum. Fyrri lotan tekur á gagnsæi sem forsendu trúverðugleika.

  • Erindi: Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA.
  • Pallborð: Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku stjórnar pallborði.
  • Innslög frá fyrirtækjum: Eiríkur Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Landfara og Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar

Síðari lotan fjallar um samkeppnishæfni Íslands í ljósi umhverfisstefnu ESB.

  • Erindi: Ágústa Ýr Þorbergsdóttir, meðeigandi KREAB.
  • Pallborð: Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Vigdís Diljá Óskardóttir, stjórnandi samskipta- og samfélagsmála hjá Alcoa Fjarðaáli, Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskipafélags Íslands. Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku stjórnar pallborði.
  • Innslög frá fyrirtækjum: Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags- og áhrifastýringar hjá Landsvirkjun, Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2025

Að lokum verða Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2025 veitt umhverfisfyrirtæki ársins 2025, umhverfisframtaki ársins 2025 auk þess sem framsækin fyrirtæki á sviði umhverfis- og loftslagsmála fá sérstök hvatningarverðlaun.

Sigríður Margrét Oddsdóttir setur daginn og flytur lokaorð.

Skráning á viðburð