12. Jún

Hringferð 2026: Grindavík

Hero icon

dags

12. júní 2026

tími

kl. 08:30 - 10:00

staður

Miðgarður 2, 240 Grindavík

Samtök atvinnulífsins fara í hringferð um landið undir yfirskriftinni „Rjúfum vítahringinn“. Á opnum fundum og í heimsóknum verður rætt um stöðu atvinnulífsins og þær aðgerðir sem þarf til að ná aftur stöðugleika í efnahagslífinu.

Í pallborði verða:

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA
Páll Erland, forstjóri HS Veitna
Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis
Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður VSFK
Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar

Með hringferðinni vill SA draga fram hvernig hægt er að styrkja samkeppnishæfni, bæta rekstrarskilyrði og skapa grundvöll fyrir aukin lífsgæði um allt land. Á fundunum verður lögð áhersla á opna umræðu um áskoranir og tækifæri á hverjum stað.

Hringferðin er liður í því að byggja upp sameiginlegan skilning á því hvað þarf til að rjúfa vítahring óstöðugleika og skapa sterkari grunn fyrir íslenskt atvinnulíf.

Þann 12. júní verðum við á Bryggjunni í Grindavík. Húsið opnar 8:15.

Skráðu þig hér að neðan.