dags
05. júní 2026
tími
kl. 08:30 - 10:00
staður
Garðavelli, 300 Akranesi
Samtök atvinnulífsins fara í hringferð um landið undir yfirskriftinni „Rjúfum vítahringinn“. Á opnum fundum og í heimsóknum verður rætt um stöðu atvinnulífsins og þær aðgerðir sem þarf til að ná aftur stöðugleika í efnahagslífinu.
Með hringferðinni vill SA draga fram hvernig hægt er að styrkja samkeppnishæfni, bæta rekstrarskilyrði og skapa grundvöll fyrir aukin lífsgæði um allt land. Á fundunum verður lögð áhersla á opna umræðu um áskoranir og tækifæri á hverjum stað.
Hringferðin er liður í því að byggja upp sameiginlegan skilning á því hvað þarf til að rjúfa vítahring óstöðugleika og skapa sterkari grunn fyrir íslenskt atvinnulíf.
Þann 5. júní verðum við í golfskála golfklúbbsins Leynis á Akranesi. Húsið opnar kl. 8:15.
