11. Jún

Hringferð 2025: Ólafsvík

Hero icon

dags

11. júní 2025

tími

kl. 12:00 - 13:30

staður

Ólafsbraut, 355 Ólafsvík

Við hefjum nýtt starfsár SA sem helgað er útflutningsgreinum með hringferð um landið.

Við bjóðum forsvarsfólki fyrirtækja og öðrum áhugasömum til hádegisverðar og vinnufundar þar sem rætt verður um helstu áskoranir fyrirtækja, hvað stjórnvöld geti gert til að stuðla að auknum tækifærum og hvernig við getum aukið útflutningstekjur Íslands og þar með lífsgæði.

Fundargestir fá tækifæri til að svara eftirfarandi spurningum:

  • Hverjar eru helstu áskoranir fyrirtækja á ykkar atvinnusvæði?
  • Hvaða geta stjórnvöld gert til að skapa aukin tækifæri og lífsgæði?
  • Hvernig getum við aukið útflutningstekjur Íslands og þar með lífsgæði?

Þann 11. júní verðum við í Félagsheimilinu á Klifi í Ólafsvík. Húsið opnar kl. 11:30 og við hlökkum til að sjá sem flesta.

Skráning hér fyrir neðan.