13. Maí

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2026

Hero icon

dags

13. maí 2026

tími

kl. 11:00

staður

Borgartún 35

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram miðvikudaginn 13. maí næstkomandi klukkan 11:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.

Fram fara hefðbundin aðalfundarstörf þar sem greint verður meðal annars frá kjöri stjórnar SA 2026-2027.

Aðildarsamtök SA gera tillögu til kjörstjórnar um tuttugu stjórnarmenn en kjörstjórn leitar einnig eftir tillögum aðildarfyrirtækja um einstaklinga til setu í stjórn. Formaður SA var kjörinn á síðasta ári til tveggja ára.

Rétt til setu á aðalfundinum eiga stjórnendur aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins ásamt starfsmönnum SA og aðildarsamtaka.

Skráning hér

Við atkvæðagreiðslu á aðalfundi fara fulltrúar í fulltrúaráði með atkvæðarétt.

Dagskrá aðalfundar:

1. Skýrsla stjórnar fyrir næstliðið starfsár
2. Reikningar samtakanna fyrir næstliðið reikningsár
3. Kjöri stjórnar lýst
4. Kosning löggilts endurskoðanda
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál


Hlökkum til að sjá þig