19. Okt

Ársfundur atvinnulífsins 2023

Hero icon

dags

19. október 2023

tími

kl. 15:00-17:00

staður

Streymi & Borgarleikhúsið

Ársfundur atvinnulífsins hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur atvinnulífs og stjórnmála til að ræða brýn málefni samfélagsins og leiðir til að bæta lífskjör landsmanna.

Í kjölfar nýliðinna skammtímasamninga beinum við sjónum okkar að stóra verkefninu framundan og framtíð íslensks atvinnulífs.

Fundurinn er rúmar 60 mínútur þar sem við stillum saman strengi.

Við heyrum raddir vinnumarkaðarins og rýnum í ferskar niðurstöður kannana um launaþróun, kjaraviðræður og vinnulöggjöf.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur árlegt ávarp sitt á fundinum og við tökum púlsinn á forystusveit Húss atvinnulífsins þvert á atvinnugreinar. Eyjólfur Árni Rafnsson , formaður SA, markar stöðuna og Sigríður Margrét Oddsdóttir , framkvæmdastjóri SA, flytur jómfrúarræðu sína á þessum vettvangi.

Að því loknu gerum við okkur glaðan dag saman við ljúffengar veitingar og líðandi tóna.

Skráning á viðburð