14. Feb

Menntadagur atvinnulífsins

Hero icon

dags

14. febrúar 2023

tími

kl. 09:00-10:30

staður

Harpa

Menntadagur atvinnulífsins hefur fest sig í sessi sem árlegur viðburður þar sem menntamál eru í brennidepli. Fundurinn í ár ber yfirskriftina Færniþörf á vinnumarkaði og er haldinn í Hörpu þriðjudaginn 14. febrúar nk. kl. 09:00 - 10:30.

Á fundinum greinum við eftirspurn eftir vinnuafli þvert á atvinnugreinar í því augnamiði að skilgreina hvaða aðgerðir eru nauðsynlegar svo vinnuaflsskortur, hvort sem um er að ræða hæfni og færni eða einfaldlega í fjölda vinnandi handa, verði ekki til þess að vöxtur í atvinnu- og efnahagslífi verði minni en ella hefði orðið.

Aðgerðir í mennta- og fræðslumálum er varða námsframboð, breytingar varðandi dvalar- og atvinnuleyfi erlends starfsfólks og öðru sem aukið gæti sveigjanleika á íslenskum vinnumarkaði gagnast best ef ákvörðunin er byggð á áreiðanlegum gögnum. Marktæk spá um færniþörf er þar lykilatriði.

Fjölbreytt dagskrá

Meðal þeirra sem koma fram:

  • Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA kynnir niðurstöður könnunar og greiningu á færniþörf á vinnumarkaði
  • Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra
  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 
  • Fjöldi atvinnurekenda og mannauðsstjóra þvert á atvinnugreinar tjáir sig um færniþörf síns geira og framtíð menntamála á Íslandi 
  • Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, veitir menntaverðlaun atvinnulífsins þeim fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum. Menntafyrirtæki ársins er valið og menntasproti ársins útnefndur, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið sem fara fyrir óháða valnefnd.

Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.

Skráðu þig hér á viðburðinn