05. Okt

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2022

Hero icon

dags

05. október 2022

tími

kl. 8:30

staður

Streymi & Harpa

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2022 verður haldinn miðvikudaginn 5. október í Hörpu Norðurljósum kl. 09:00-10.30 undir yfirskriftinni Auðlind vex af auðlind. Húsið opnar kl. 08:30 með morgunhressingu.

Dagurinn er árviss viðburður og að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Dagskrá umhverfisdagsins 5. október lýkur með afhendingu Umhverfisverðlauna atvinnulífsins og við tekur tengslamyndun og léttar veitingar fyrir fundargesti til kl. 11:00.

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins í ár verða veitt fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum. Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verðlaun fyrir umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins. Venju samkvæmt afhendir forseti Íslands Umhverfisverðlaun atvinnulífsins.

Í tengslum við Umhverfisdag atvinnulífsins er allur októbermánuður eyrnamerktur umhverfismálum og þá sér í lagi hringrásarhagkerfinu. Hringrásarhagkerfið snýst um hvernig nýta má hráefni á sem skilvirkastan hátt og fyrirbyggja t.a.m. sóun og losun gróðurhúsalofttegunda með breyttum áherslum í vöru- og þjónustuhönnun. Rannsóknir sýna að búast má við að hringrásarhagkerfinu fylgi jákvæð áhrif á efnahagslífið og landsframleiðslu. Einnig má búast við aukinni samkeppnishæfni hagkerfisins.

Dagskrá

Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku.

Setning

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Ávarp

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðherra

Í átt að kolefnishlutleysi

Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi

Pallborð

  • Anna Þórdís Rafnsdóttir, verkefnastjóri sjálfbærni hjá Kviku og varaformaður IcelandSIF 
  • Björk Kristjánsdóttir, forstjóri Carbon Recycling International (CRI)  

Höfum við tíma til að bíða lengur?

Berglind Ósk Ólafsdóttir , sérfræðingur í sjálfbærni hjá BYKO

Ný viðmið í sjávarútvegi
Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísi hf.

Hringrás auðlinda – magn er málið
Dagný Jónsdóttir, forstöðumaður Auðlindagarðs HS Orku.

Pallborð

  • Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins 
  • Þorsteinn Kári Jónsson, forstöðumaður sjálfbærni og samfélagstengsla hjá Marel  
  • Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherji fiskeldi  

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2022

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir verðlaun fyrir Umhverfisfyrirtæki ársins og Umhverfisframtak ársins.

Skráning á viðburð