Varpið

Sjónvarp - 06.10.2022

Umhverfismánuður atvinnulífsins 2022 - Selfoss er: Sjálfbær miðbær

Selfoss er: Sjálfbær miðbær. Skapti Örn Ólafsson, samskiptafulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar ræðir við Guðjón Arngrímsson, verkefnastjóra við uppbyggingu nýs miðbæjar á Selfossi. Guðjón segir okkur frá því hvernig sjálfbærni hefur verið höfð að leiðarljósi við uppbyggingu miðbæjarins.

Október er eyrnamerktur umhverfismálum hjá Samtökum atvinnulífsins og aðildarsamtökum og í ár er sjónum beint að hringrásarhagkerfinu undir yfirskriftinni Auðlind vex af auðlind . Hvern þriðjudag og fimmtudag í október njótum við 20 mínútna áhorfs á Samtöl atvinnulífsins þar sem hver atvinnugrein ræðir áskoranir og tækifæri í hringrásarhagkerfinu.