Varpið

Sjónvarp - 04.10.2022

Umhverfismánuður atvinnulífsins 2022: IcelandSIF og ábyrgar fjárfestingar

IcelandSIF og ábyrgar fjárfestingar í umsjón Arnars I. Jónssonar hjá Samtökum fjármálafyrirtækja. Í þættinum ræðir Arnar við Kristbjörgu M. Kristinsdóttur, stjórnarformann IcelandSIF.

Október er eyrnamerktur umhverfismálum hjá Samtökum atvinnulífsins og aðildarsamtökum og í ár er sjónum beint að hringrásarhagkerfinu undir yfirskriftinni Auðlind vex af auðlind . Hvern þriðjudag og fimmtudag í október njótum við 20 mínútna áhorfs á Samtöl atvinnulífsins þar sem hver atvinnugrein ræðir áskoranir og tækifæri í hringrásarhagkerfinu.