
Menntadagur atvinnulífsins 2026
Framtíðin kallar. Er menntakerfið að hlusta?
Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt við hátíðlega athöfn á Menntadegi atvinnulífsins á Hilton Reykjavík Nordica þann 11. febrúar síðastliðinn.
Yfirskrift dagsins var Framtíðin kallar. Er menntakerfið að hlusta? og var sjónum sérstaklega beint að samspili og samvinnu atvinnulífs og skóla.
Menntadagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku.
Menntadagur atvinnulífsins

Dagurinn var afar vel sóttur og á meðal gesta voru forsvarsmenn fyrirtækja, skólastjórnendur, kennarar og lykilfólk úr stjórnsýslunni. Gestir gátu kynnt sér árangur fjölbreyttra fyrirtækja í fræðslu- og menntamálum á þar til gerðu Menntatorgi og Menntastofan tók gesti og gangandi tali þar sem kastljósinu var beint að mikilvægi menntunar og samstarfi atvinnulífs og menntakerfis.
Dagurinn hófst á innslagi frá Tækniskólanum þar sem gestir fengu hressandi innsýn inn í hinar ýmsu iðngreinar með augum ungu kynslóðarinnar. Í framhaldi kynnti framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins niðurstöður Gallup-könnunar sem lögð var fyrir fyrirtæki í aðdraganda Menntadagsins.
Niðurstöður könnunnar
Samstarf atvinnulífs og menntakerfis of lítið

Kom þar fram í kynningu framkvæmdastjóra að 41% fyrirtækja eru nú þegar í beinu samstarfi við menntakerfið. Sést það til að mynda á þeim fjölda fyrirtækja sem tóku til sín iðnnema með rafræna frilbók á árinu 2025 en þau voru rúmlega 700. Hins vegar telja 68% fyrirtækja að samstarf atvinnulífs og menntakerfis sé of lítið en á sama tíma eru 98% fyrirtækja áhugasöm um aukið samstarf.
Ennþá mælist talsverður skortur á starfsfólki, þrátt fyrir teikn á lofti í efnahagsmálum. Þannig glímir um fimmtungur fyrirtækja landsins við skort á starfsfólki og um fjórðungur stjórnenda telur að skortur á starfsfólki muni standa í vegi fyrir vexti fyrirtækja sinna á næstu fimm árum. Var undirstrikað að þessi skortur á færni muni verða flöskuháls hagvaxtar og hagsæld framtíðar. Af þeim fyrirtækjum sem skortir starfsfólk, skortir 60% iðnmenntað starfsfólk. Mestur var skorturinn í rafvirkjun, bíliðngreinum, vélvirkjun og húsasmíði. Þá eykst á milli ára sá hlutfallslegi fjöldi fyrirtækja sem skortir háskólamenntaða, en um þriðjungur fyrirtækja sem skortir starfsfólk, skortir háskólamenntaða. Niðurstöðurnar sýna að það er skortur á verkfræði-, tæknifræði- og framleiðslutæknimenntuðum af háskólastigi og það er mikil vöntun á fólki sem er menntað í raungreinum og raunvísindum.
Menntaverðlaun atvinnulífsins
BM Vallá er Menntafyrirtæki ársins 2026

BM Vallá er Menntafyrirtæki ársins 2026.
Í umsögn dómnefndar segir:
„Val dómnefndar á BM Vallá byggir á því að fræðsla sé ekki jaðarverkefni heldur órjúfanlegur hluti af erfðamengi fyrirtækisins, bæði í rekstri og mannauðsmálum. Frá árinu 2020 hefur fyrirtækið lyft grettistaki í fræðslumálum innan byggingariðnaðarins og markvisst umbreytt menningu, viðhorfum og sjálfstrausti starfsfólks. Hjá BM Vallá starfar fjölþjóðlegur hópur fólks og hefur fyrirtækinu tekist að tryggja raunverulegt aðgengi allra að fræðslu með inngildandi nálgun, fræðslu á vinnutíma og lausnum sem taka mið af raunverulegum aðstæðum íslensks vinnumarkaðar. Með ástríðu, metnaði og mælanlegum árangri sýnir BM Vallá í verki hvernig fræðsla getur eflt einstaklinga, styrkt fyrirtæki og haft jákvæð áhrif á samfélagið í heild.“
Þrjú fyrirtæki fengu tilnefningu í flokki Menntafyrirtækis ársins en auk BM Vallár voru Krónan og AÞ-Þrif tilnefnd.
Menntaverðlaun atvinnulífsins
Atlas Primer hlýtur Menntasprota ársins 2026

Atlas Primer hlaut Menntasprota ársins 2026.
Í umsögn dómnefndar segir:
„Atlas Primer sameinar tæknilega forystu, samfélagslega ábyrgð og alþjóðlegan metnað í hágæða stafrænni fræðslu. Með nýstárlegri samtalsgervigreind getur menntatæknifyrirtækið umbreytt því hvernig fræðsla og starfsþróun fara fram, gert nám aðgengilegra, mannvænna og skilvirkara fyrir ólíka hópa og jafnað aðstöðumun þeirra sem eiga undir högg að sækja í hefðbundnu fræðsluumhverfi. Atlas Primer sýnir að fjárfesting í stafrænni fræðslu er lykilforsenda samkeppnishæfni á tímum örra breytinga og hefur með alþjóðlegum árangri sínum skapað raunveruleg verðmæti bæði hér heima og erlendis. Með þessari vegferð er Atlas Primer fyrirmynd íslenskra sprotafyrirtækja og sannfærandi dæmi um það hvernig íslensk menntatækni getur haft víðtæk áhrif, eflt mannauð og lagt grunn að sjálfbærri framtíð.“
Starfsmenntasjóðir leggja deginum lið

Starfsmenntasjóðir hafa aukið starfshæfni og menntunarstig starfsfólks á almennum vinnumarkaði og bætt samkeppnishæfni fyrirtækja.
Landsmennt, Starfsafl, Starfsmenntasjóður verslunar og skrifstofufólks og Starfsmenntasjóður STF lögðu Menntadegi atvinnulífsins lið.
Sjónvarp
-
0:00
Sjónvarp
-
0:00





