1 MIN
Yfirlýsing framkvæmdastjórnar Samtaka atvinnulífsins (1)
Undanfarna mánuði hafa Samtök atvinnulífsins og ASÍ og landssambönd þess unnið að gerð þriggja ára kjarasamnings sem byggir á atvinnuleiðinni. Með henni er sköpuð ákveðin framtíðarsýn þar sem áherslan er lögð á hagvöxt, öruggt og tryggt starfsumhverfi fyrir allar atvinnugreinar, aukningu kaupmáttar og að draga úr atvinnuleysi. Til þess að ná þessu fram var aðkoma ríkisstjórnarinnar nauðsynleg.

Þegar viðræðum um kjarasamning var slegið á frest fyrir páska lá fyrir grunnur að kjarasamningi aðila en út af stóðu nokkur mál sem ræða þurfti nánar við ríkisstjórnina.
Í gærkvöldi bárust ný drög að yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana. Að mati SA er þar komið að nokkru til móts við sjónarmið samtakanna um auknar framkvæmdir í hagkerfinu auk þess sem sett er fram ákveðin bókun um meðferð frumvarps um sjávarútvegsmál.
Samtök atvinnulífsins telja mikilvægt að skapa fyrirtækjum landsins starfsöryggi og frið og hafa því ákveðið að láta reyna á vilja ASÍ og landssambandanna til að ljúka gerð þriggja ára kjarasamnings með aðfarasamningi til 15. júní nk.
Þrátt fyrir slæma reynslu SA af yfirlýsingu ríkisstjórnar við gerð stöðugleikasáttmálans 2009 þá hefur framkvæmdastjórn SA á fundi sínum í morgun ákveðið að leita eftir því við samningsaðila að ljúka gerð kjarasamningsins. SA leggja mikla áherslu á að fylgja eftir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og munu vinna að þvi af fullum heilindum. Þetta er gert í þeirri fullvissu að atvinnuleiðin sé best til þess fallin að ná þjóðinni út úr kreppunni og skapa grundvöll að nýrri sókn í atvinnumálum, auknum kaupmætti og því að unnt verði að draga úr atvinnuleysinu.
Umfjöllun fjölmiðla:
Hádegisfréttir RÚV - rætt við Vilmund Jósefsson, formann SA
Hádegisfréttir Bylgjunnar - rætt við Vilmund Jósefsson, formann SA
Viðtal við Margréti Kristmannsdóttur - formann SVÞ á Bylgjunni