Vinnumarkaður - 

17. janúar 2013

Vinnumarkaðurinn fær öflugan liðsstyrk

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Vinnumarkaðurinn fær öflugan liðsstyrk

Liðsstyrkur er nýtt átaksverkefni Samtaka atvinnulífsins, stéttarfélaga, sveitarfélaga og ríkisins. Markmið verkefnisins er að auðvelda atvinnurekendum nýráðningar á fólki sem hefur verið lengi án vinnu með myndarlegu mótframlagi. Fyrirtækin í landinu gegna lykilhlutverki í átakinu en stefnt er að því að þau skapi 1.320 ný störf fyrir langtímaatvinnulausa á næstu mánuðum af alls 2.200 störfum. SA hvetja félagsmenn sína til að taka þátt og verða að liði. Ráðningarferlið er einfalt og skilyrði fyrir styrkveitingu skýr.

Samtöl við stjórnendur fyrirtækja gefa til kynna að víða séu óunnin verk og þörf fyrir starfsfólk á mörgum sviðum. Því skapar Liðsstyrkur ný tækifæri, bæði fyrir atvinnulífið og fólk sem fær tækifæri til að komast inn á vinnumarkaðinn á ný og láta til sín taka.

Til að hvetja fyrirtæki til að ráða þennan hóp einstaklinga mun Atvinnuleysistryggingasjóður greiða þeim jafnvirði fullra bóta í 6 mánuði m.v. fullt starf ef ráðningin á sér stað fyrir 1. apríl 2013. Ef ráðning á sér stað í apríl eða maí þá fá fyrirtæki greiddar 90% af bótum og 80% ef ráðið er í nýtt starf eftir 1. júní nk.

Skilyrði þess að atvinnurekandi fái styrk með starfi eru einföld og skýr:

  • Ráðning viðkomandi atvinnuleitanda feli í sér aukningu á starfsmannafjölda.

  • Fyrirtæki hafi að minnsta kosti einn starfsmann á launaskrá.

  • Fyrirtæki hafi síðastliðna sex mánuði ekki sagt starfsmönnum upp sem gegnt höfðu starfinu sem ráða á í.

  • Ráðning feli ekki í sér verulega röskun á samkeppni innan atvinnugreinar á viðkomandi svæðis.

  • Staðfesting á launagreiðslu til starfsmanns fylgi með reikningi til Vinnumálastofnunar vegna greiðslu styrks á grundvelli samnings um Liðsstyrk.

  • Samningur um Liðsstyrk, ráðningarviðtalsblað og afrit ráðningarsamnings hafi borist vinnumiðlara frá atvinnurekanda.

Fyrirtæki sem taka þátt í átakinu geta skráð störfin ásamt lýsingu á þekkingu og reynslu sem starfsmaður þarf yfir að búa í starfagrunn á heimasíðu átaksins www.lidsstyrkur.is eða haft beint samband við ráðgjafa VMST (www.vmst.is) eða STARFS (www.starfid.is). Ráðgjafi mun senda viðkomandi fyrirtæki nöfn nokkurra einstaklinga sem best eru taldir uppfylla þau skilyrði, enda hafi þeir áður farið í greiningarviðtal.

Frekari upplýsingar um átakið fást hjá starfsmanni SA, Hjörleifi Þórðarsyni (hjorleifur@sa.is) í síma 591-0007 og á heimasíðu átaksins www.lidsstyrkur.is. Hjörleifur mun á næstu dögum kynna verkefnið nánar fyrir fyrirtækjum og veita leiðbeiningar um möguleika fyrirtækja til þátttöku. Einnig geta fyrirtæki haft beint samband við hann að afla nánari upplýsinga.

Samtök atvinnulífsins