18. janúar 2023

Vinna að nýjum langtímasamningi SA og SGS án Eflingar hafin

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Vinna að nýjum langtímasamningi SA og SGS án Eflingar hafin

Maj-Britt Hjördís Briem og Sólveig B. Gunnarsdóttir, lögfræðingar á vinnumarkaðssviði SA sátu fund með fulltrúum SGS í gær þar sem vinna er hafin við langtímakjarasamning

SGS og SA hittust í húsakynnum ríkissáttasemjara í gær á fyrsta fundi til undirbúnings langtímakjarasamnings. Viðræðurnar eru í samræmi við verkáætlun sem fylgdi framlengingu Lífskjarasamningsins til 31. janúar 2024 þar sem viðræðum um önnur atriði en launalið í kröfugerð aðila var frestað. Í samræmi við verkáætlun var á þessum fyrsta fundi fjallað um menntun, fræðslu og fagbréf, vinna hópsins skipulögð og umfang verkefnisins metin. Gengið var frá fundaáætlun sem miðast við það að verkefni vinnuhópanna verði lokið í samræmi við þá tímasetningu sem kemur fram í verkáætlun.

Tengt frétt

Brú að bættum lífskjörum samþykkt af aðildarfyrirtækjum SA
Lesa meira

Samtök atvinnulífsins