Efnahagsmál - 

10. mars 2011

Viðræður við stjórnvöld ganga afar hægt

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Viðræður við stjórnvöld ganga afar hægt

Líkur hafa minnkað á að takist að ljúka kjaraviðræðum Samtaka atvinnulífsins og ASÍ um miðjan mars eins og stefnt hefur verið að. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segist í samtali við mbl.is ekki bjartsýnn á að niðurstaða fáist í næstu viku eins og staðan er. Viðræður standa nú yfir og eru viðsemjendur lítillega byrjaðir að ræða launalið væntanlegra samninga. Vilhjálmur segir að viðræðurnar að undaförnu við ASÍ og sérsamböndin um sérmál og sameiginleg mál hafi gengið ágætlega en viðræður við stjórnvöld gangi afar hægt fyrir sig.

Í frétt mbl.is 9. mars segir þó að fundir séu haldnir um einstök mál mál með fulltrúum stjórnvalda en ekkert sé farið að ræða stærstu málin á borð við atvinnumál og sjávarútvegsmálin. Enn er stefnt að gerð kjarasamninga til þriggja ára sem taki gildi í júní.

Samtök atvinnulífsins