Vinnumarkaður - 

19. maí 2015

Viðræðum SA við VR og Flóabandalagið slitið

Kjarasamningar

Kjarasamningar

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Viðræðum SA við VR og Flóabandalagið slitið

Samningaviðræðum Samtaka atvinnulífsins við VR og Flóabandalagið var slitið í dag hjá ríkissáttasemjara.

Samningaviðræðum Samtaka atvinnulífsins við VR og Flóabandalagið var slitið í dag hjá ríkissáttasemjara.

Staðan í kjaradeilunum er nú mjög flókin og fáir góðir kostir í boði. Vandséð er að hægt sé að forða víðtækum verkföllum verkalýðshreyfingarinnar. Afleiðingar þeirra verða alvarlegar fyrir bæði launafólk, fyrirtæki og þjóðarhag. Verði ítrustu kröfur verkalýðsfélaganna knúnar fram með verkföllum verða afleiðingarnar hins vegar enn verri. Verðtryggðar skuldir heimila og fyrirtækja munu hækka mikið, vextir hækka og störfum fækka. Við slíkum búsifjum má Ísland vart við um þessar mundir en verkalýðsforystan hefur valið að fara þá leið. Þessi niðurstaða veldur Samtökum atvinnulífsins miklum vonbrigðum.

Samtök atvinnulífsins hafa verið tilbúin að koma til móts við kröfur verkslýðsfélaganna um verulega hækkun lægstu launa og umtalsverða hækkun dagvinnulauna fyrir þriggja ára samning, eða sem nemur um 24% hækkun. Þessu boði höfnuðu verkslýðsfélögin í dag án þess að leggja fram nokkrar raunhæfar lausnir um nýjan kjarasamning sem tryggir launafólki aukinn kaupmátt, viðheldur lágri verðbólgu og jafnvægi í efnahagslífinu.

Samtök atvinnulífsins