Efnahagsmál - 

17. ágúst 2012

Viðkvæm staða í byggingariðnaði

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Viðkvæm staða í byggingariðnaði

Mörg fyrirtæki í byggingariðnaði eru í viðkvæmri stöðu. Þetta kemur fram í umfjöllun fréttastofu Ríkisútvarpsins. Þótt dregið hafi úr atvinnuleysi í bygginga- og verktakastarfsemi síðustu mánuði hafa forráðamenn fyrirtækja í greininni áhyggjur af stöðunni í vetur, því fá verkefni séu framundan, sérstaklega hjá hinu opinbera. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA tekur undir þessar áhyggjur.

Hann segir í samtali við RÚV að það séu helst Vaðlaheiðargöngin sem komin séu af stað. Samgönguframkvæmdir út frá höfuðborginni, tvöföldun Suðurlands- og Vesturlandsveg hafi ekki gengið eftir. Vilhjámur segir að ekki einu sinni hafi verið hægt að koma nýrri samgöngumiðstöð í gagnið sem þó sé ekki mikil framkvæmd.  Hann nefnir líka að engar framkvæmdir séu hafnar við háskólasjúkrahús eða nýtt fangelsi. Mikið hafi verið talað en ekkert gerist þrátt fyrir yfirlýsingar.

Samtök atvinnulífsins