Vinnumarkaður - 

25. maí 2015

Verkföllum frestað um fimm sólarhringa

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Verkföllum frestað um fimm sólarhringa

Forsvarsmenn samninganefnda VR, LÍV, Flóabandalagsins, StéttVest og Samtaka atvinnulífsins hafa náð samkomulagi um frestun verkfallsaðgerða, sem áttu að hefjast þann 28. maí næstkomandi, um fimm sólarhringa. Ekki verður upplýst um einstaka efnisþætti viðræðna aðila fyrr en gengið hefur verið frá drögum að samningi sem lagður verður fyrir samninganefndir félaganna. Stefnt er að því að niðurstaða liggi fyrir eigi síðar en 28. maí næstkomandi.