Vinnumarkaður - 

22. febrúar 2023

Verkbann samþykkt með 94,73% greiddra atkvæða

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Verkbann samþykkt með 94,73% greiddra atkvæða

Aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins hafa, með afgerandi meirihluta, samþykkt verkbann á félagsmenn Eflingar. 94,73% þeirra sem kusu greiddu atkvæði með verkbanni. Einungis 3,32% greiddu atkvæði á móti.

Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var mjög góð, eða 87,88% atkvæða samkvæmt atkvæðaskrá.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins: „Að fá svo afgerandi niðurstöðu er mjög mikilvægt í þeirri orrahríð sem nú gengur yfir. Atkvæðagreiðslan leiðir í ljós gríðarlegan stuðning fyrirtækjanna í landinu við málflutning Samtaka atvinnulífsins og ábyrga nálgun okkar í afar vandasamri stöðu.

Að efna til verkbanns er ekki ákvörðun sem tekin er af léttúð, en þau spil sem eru á hendi bjóða ekki upp á marga kosti. Þetta er neyðarráðstöfun þar sem fyrirtækin eru að bera hönd fyrir höfuð sér, þegar á skellur hrina þaulskipulagðra verkfalla sem ætlað er að lama samfélagið en valda Eflingu sem minnstum tilkostnaði. Það er okkar von að boðun verkbannsins leiði til skjótari niðurstöðu við samningaborðið enda er vinnudeilan nú þegar farin að valda verulegum skaða í samfélaginu.

Það eru þung skref að taka að boða til verkbanns, Samtök atvinnulífsins líta á það sem frumskyldu sína að tryggja frið á vinnumarkaði, en meðan forysta Eflingar velur alltaf ófrið þótt friður sé í boði, munum við taka til varna eins og við höfum rétt til samkvæmt lögum.“

Verkbann Samtaka atvinnulífsins tekur að óbreyttu gildi í næstu viku, fimmtudaginn 2. mars kl. 12:00, og er ótímabundið þar til samist hefur. Fresti Efling verkföllum munu Samtök atvinnulífsins að sama skapi fresta verkbannsaðgerðum sínum.

Veittar verða undanþágur frá verkbanninu vegna mikilvægrar starfsemi í þágu samfélagsins. Þess verður sérstaklega gætt að lágmarka áhrif á viðkvæma hópa og veittar verða undanþágur til handa starfsemi er varðar öryggi, heilbrigði og lykilinnviði samfélagsins.

Þetta þarftu að vita um verkbann.

Samtök atvinnulífsins