1 MIN
„Verðbólga er ekki náttúruafl“
Forsætisráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið, Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa hafið þríhliða samtal um verðlagsþróun í samhengi við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Markmið samtalsins er að stuðla að auknum stöðugleika, minni verðbólgu og bættum forsendum fyrir heimili og fyrirtæki.
Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir mikilvægt að stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins horfi sameiginlega á stöðu efnahagsmála.
„Samtök atvinnulífsins hafa kallað eftir markvissu þríhliða samtali um verðbólgu, stöðugleika og samkeppnishæfni íslensks hagkerfis og óskuðu formlega eftir slíku samráði með bréfi til stjórnvalda í upphafi árs. Það er mikilvægt að við eigum hreinskilið samtal um stöðuna og vinnum sameiginlega að því að rjúfa vítahring verðbólgunnar,“ segir Jón Ólafur. „Verðbólga er ekki náttúruafl heldur verkefni sem við verðum að takast á við af alvöru og þunga.“
Settur hefur verið á fót stýrihópur með fulltrúum forsætisráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, auk þriggja undirhópa sem munu vinna að afmörkuðum verkefnum. Fulltrúar frá BSRB, BHM, Kennarasambandi Íslands og Sambandi íslenskra sveitarfélaga taka jafnframt þátt í starfi tveggja undirhópanna.
Samtök atvinnulífsins hafa undanfarin misseri lagt áherslu á mikilvægi aukins samtals og samráðs um efnahagsmál. Sú áhersla verður einnig leiðarljós í Hringferð SA 2026 þar sem forsvarsfólk samtakanna mun funda með fyrirtækjum, sveitarfélögum og samfélaginu um allt land undir yfirskriftinni Rjúfum vítahringinn.