1 MIN
Vara við víðtækum heimildum sem skerða atvinnufrelsi
Samtök atvinnulífsins hafa skilað inn umsögn um frumvarp stjórnvalda sem ætlað er að bæta viðbrögð við lyfjaskorti. Samtökin taka undir mikilvægi þess að tryggja aðgengi sjúklinga að lyfjum en leggja sérstaka áherslu á að vernda atvinnufrelsi við lagasetningu.
Í umsögninni er bent á að frumvarpið feli í sér víðtækar heimildir fyrir Lyfjastofnun til að stýra og takmarka afgreiðslu og afhendingu lyfja. Slíkar heimildir geti falið í sér umfangsmikið inngrip í atvinnufrelsi fyrirtækja á lyfjamarkaði, sem nýtur verndar samkvæmt stjórnarskrá. Því sé nauðsynlegt að rökstyðja heimildarákvæði betur og afmarka þau skýrar þannig að ekki sé gengið lengra en almannahagsmunir krefjast.
Samtökin gera einnig athugasemdir við auknar skyldur heildsöluleyfishafa til að tilkynna um yfirvofandi lyfjaskort. Að þeirra mati eru ákvæði frumvarpsins of óljós, til dæmis hvað teljist „yfirvofandi skortur“ og hvenær tilkynna skuli „án tafar“. Slík óvissa geti skapað réttaróvissu, sérstaklega þar sem brot á skyldunum geta varðað viðurlögum.
SA telja að frumvarpið gangi lengra en þörf krefur og að unnt sé að ná markmiðum þess með vægari úrræðum. Þau leggja til að heimildir stjórnvalda verði takmarkaðar við neyðarástand eða skort á lífsnauðsynlegum lyfjum, þannig að betur sé gætt jafnvægis milli almannahagsmuna og atvinnufrelsis.