Fréttir - 

17. janúar 2018

Unnur Elfa til Samtaka atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Unnur Elfa til Samtaka atvinnulífsins

Unnur Elfa Hallsteinsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri á samkeppnishæfnisviði Samtaka atvinnulífsins. Hún er lögfræðingur frá Háskóla Íslands en hún starfaði áður hjá sendiráði Íslands í Brussel, EFTA og Fjármálaeftirlitinu.

Meistararitgerð Unnar í lögfræði fjallaði um samanburð á reglum ESB og EES réttar og reglum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um viðskipti með vörur. BA ritgerð hennar fjallaði um framsal ríkisvalds alþjóðastofnana með tilliti til Schengen samstarfsins.

Unnur Elfa hefur þegar hafið störf hjá Samtökum atvinnulífsins sem bjóða hana velkomna.

Samtök atvinnulífsins