1 MIN
Umhverfisverðlaun atvinnulífsins - Innsendingum lýkur 20. október
Frestur til að senda inn tilnefningar til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins rennur út 20. október. Að verðlaununum standa Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök.
Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn á Umhverfisdegi atvinnulífsins 24. nóvember, sem haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica.
Tveir verðlaunaflokkar
Veitt verða tvenn verðlaun:
- Umhverfisfyrirtæki ársins
- Framtak ársins
Tilnefna þarf fyrirtæki sérstaklega undir hvorn flokk en einnig er heimilt að tilnefna sama fyrirtækið í báða flokka.
Skilyrði og rökstuðningur
Dómnefnd velur úr innsendum tilnefningum en til að þær teljist gildar þurfa fyrirtæki að uppfylla sett viðmið og ítarlegur rökstuðningur að fylgja með. Aðeins skráð aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins og aðildarsamtaka þeirra geta hlotið tilnefningu.
Sameiginlegt framtak atvinnulífsins
Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa:
- Samtök atvinnulífsins
- Samtök iðnaðarins
- Samorka
- Samtök ferðaþjónustunnar
- Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu
- Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
- Samtök verslunar og þjónustu