Samkeppnishæfni - 

16. október 2018

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2018

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2018

Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn miðvikudaginn 17. október 2018 í Hörpu Norðurljósum kl. 8.30-12. Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn miðvikudaginn 17. október 2018 í Hörpu Norðurljósum kl. 8.30-12. Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Sameiginleg dagskrá samtakanna hefst kl. 8.30 og stendur til 10. Málstofur hefjast kl. 10.30 og standa til kl. 12. Boðið verður upp á létta hádegishressingu og netagerð að lokinni dagskrá. Hægt er að skrá sig á sameiginlega hlutann eingöngu sem lýkur kl. 10.

SAMEIGINLEG DAGSKRÁ

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA
Sigsteinn Grétarsson, framkvæmdastjóri Arctic Green Energy
Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs og um langa hríð yfirmaður hjá loftslagssamningi S.þ.
Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ

UMHVERFISVERÐLAUN ATVINNULÍFSINS 2018

Ragna Sara Jónsdóttir, formaður dómnefndar og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands afhenda verðlaunin.

Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku.

Málstofa um alþjóðaviðskipti og loftslagsmál kl. 10.30-12 í Norðurljósum

Loftslagsvænt sérmerkt ál
Guðrún Þóra Magnúsdóttir, forstöðumaður umhverfismála hjá Rio Tinto á Íslandi

Árangur sjávarútvegsins í loftslagsmálum
Hildur Hauksdóttir, verkefnastjóri hjá HB Granda

Stöðugar umbætur – sjálfbær ferðaþjónusta
Guðrún Helga Heiðarsdóttir, sérfræðingur í samfélagsábyrgð, Icelandair Group

Fjárfestingar til framtíðar– tækifæri og áskoranir samhliða loftslagsbreytingum
Brynjólfur Stefánsson, sérfræðingur hjá Íslandssjóðum

Kolefnishlutlaus orku- og veitustarfsemi 2030
Marta Rós Karlsdóttir, forstöðumaður auðlinda, Orku náttúrunnar

Málstofustjóri er Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar


Málstofa um grænar lausnir atvinnulífsins kl. 10.30-12 í Rímu


Framtíð sorpförgunar
Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur og stofnandi Environice

Vistvæn mannvirki
Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Grænnar byggðar

Er plastið á leið úr búðunum?
Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur SVÞ

Endurnýjanlegt eldsneyti og sjálfbærar samgöngur
Margrét Ormslev, fjármálastjóri CRI

Málstofustjóri er Rakel Garðarsdóttir, stofnandi Vakandi

Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA.

Umsóknarferli er lokið.


Upptökur frá Umhverfisdegi atvinnulífsins 2017 eru aðgengilegar á vef SA en loftslagsmál voru þar í kastljósinu. Icelandair hótel var valið umhverfisfyrirtæki ársins og Landsnet fékk verðlaun fyrir framtak ársins á sviði loftslagsmála. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands var sérstakur gestur fundarins.

Samtök atvinnulífsins