1 MIN
Þau eru tilnefnd sem menntafyrirtæki ársins 2026
Tilkynnt var í gær hvaða þrjú fyrirtæki hafa hlotið tilnefningu sem menntafyrirtæki ársins 2026. Í ár eru það BM Vallá, AÞ-Þrif og Krónan sem standa upp úr og hljóta tilnefningu.
Fjölmargar vandaðar og metnaðarfullar umsóknir bárust dómnefndinni í ár og reyndist valið því ekki auðvelt. Þau fyrirtæki sem hlutu tilnefningu stóðu sérstaklega upp úr samkvæmt þeim viðmiðum sem sett voru fram í ár.
Tilkynnt verður á Menntadegi atvinnulífsins 11. febrúar næstkomandi hvert þessara þriggja fyrirtækja hlýtur titilinn menntafyrirtæki ársins 2026, auk þess sem tilkynnt verður um sigurvegara menntasprotans 2026.
Menntadagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku.
Skráning á Menntadag atvinnulífsins fer fram hér.


