Fréttir - 

07. september 2017

TEDxReykjavík 2017 á laugardaginn

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

TEDxReykjavík 2017 á laugardaginn

TEDxReykjavík ráðstefnan verður haldin í sjöunda skipti laugardaginn 9. september. Samtök atvinnulífsins eru bakhjarl viðburðarins en í ár er þema hans „ný hugsun“ (e. re-imagine). Frummælendur eru hugmyndaríkir frumkvöðlar sem munu deila hugmyndum um hvernig hugsa má hlutina upp á nýtt og búa til betra samfélag.

TEDxReykjavík ráðstefnan verður haldin í sjöunda skipti laugardaginn 9. september. Samtök atvinnulífsins eru bakhjarl viðburðarins en í ár er þema hans „ný hugsun“ (e. re-imagine). Frummælendur eru hugmyndaríkir frumkvöðlar sem munu deila hugmyndum um hvernig hugsa má hlutina upp á nýtt og búa til betra samfélag.

TEDx viðburðir eru smærri útgáfa af TED þar sem fyrirlesarar víðs vegar úr heiminum flytja stutt og kraftmikil erindi um allt milli himins og jarðar. TEDx-erindin eru svo birt á rásinni TEDx Talks á YouTube þar sem þau eru öllum aðgengileg. Á TEDx viðburði gefst gestum tækifæri til að eiga góða samverustund með spennandi fyrirlesurum, eiga áhugaverðar samræður og mynda tengsl sín á milli. TEDx fer fram á ensku en miða má nálgast á miði.is.

Nútímafólki verður gert kleift að stunda hugleiðslu í sýndarveruleika.

Upplýsingar um frummælendur má nálgast hér að neðan:

Jonatan “Joon” Van Hove – leikjahönnuður - veitir innsýn inn í nýja hreyfingu meðal ungra tölvuleikmanna og hvaða ályktanir má draga frá henni. Af hverju ákveða sumir leikmenn að brjóta allar reglur og spila leiki á allt annan hátt en leikjahönnuðurinn gerði ráð fyrir? 

Tristan Elizabeth Gribbin - stofnandi og framkvæmdastjóri FLOWVR - ræðir um mikilvægi og gildi hugleiðslu, hvernig hún hefur endurhugsað leiðir til hugleiðslu og gert nútímafólki kleift að hugleiða með aðstoð hugbúnaðar á borð við sýndarveruleika.

Halldóra Mogensen - þingkona - mun hvetja til umræðu um almenn borgaralaun, endurskoðun á íslenska efnahagskerfinu og leggja fram tillögur að sjálfbæru efnahagskerfi.

Sigurður Ólafur Sigurðarson - ljósmyndari - skoðar hvernig ljósmyndun getur sýnt okkur nútímavandamál frá nýju sjónarhorni. Getur ljósmynd raunverulega sagt alla söguna? 

50% plasts er notað einu sinni og hent í ruslið.

Ari Jóns - nemi í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands - mun kynna hugmynd sína um vatnsflösku sem brotnar niður í náttúrunni á einungis nokkrum dögum. Hann fékk hugmyndina þegar hann komst að því að 50% plasts er notað einu sinni og hent í ruslið. Hann skorar á okkur að nálgast vandann við aukna plastnotkun á skapandi hátt. 

Aishling Muller - listakona - vill endurskoða hlutverk lista í heiminum og okkar eigin lífi. Hún heldur því fram að listir eigi ekki einungis við listafólk heldur eigi allir að geta notið þess að skapa. Ættu fleiri manneskjur að nýta sér listir til að takast á við og njóta lífsins?

Benjamín Sigurgeirsson - doktor í líftækni - Ræðir um mataræði mannkynsins. Hann segir að við höfum ómeðvitað þróað með okkur matarvenjur sem séu skaðlegar umhverfinu og lífi á jörðinni. Benjamín hvetur okkur til að endurhugsa ályktanir okkar um mataræði og skoða hvað það getur haft gríðarlegan ávinning í för með sér. 

Meðal samstarfsaðila TEDxReykjavík í ár eru Samtök atvinnulífsins, Opin kerfi, CCP, JCI, Háskólinn í Reykjavík, REON, Omnom, REC Studio og fleiri.

Samtök atvinnulífsins