Vinnumarkaður - 

10. júlí 2013

Styrkir til fyrirtækja vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Vinnustaðanámssjóði. Umsóknarfrestur er til 16. ágúst 2013. Vinnustaðanámssjóður veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.

Margrét Jóhannsdóttir hjá Rannís veitir nánari upplýsingar. Síminn hennar er 515 5835 og netfang margret.johannsdottir@rannis.is.

Nánari upplýsingar: 

Um Vinnustaðanámssjóð

Leiðbeiningar fyrir umsækjendur

Rafrænt umsóknarkerfi

Samtök atvinnulífsins