26. apríl 2024

Stöðugleiki kemur ekki af sjálfu sér

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Stöðugleiki kemur ekki af sjálfu sér

Verkefnið er ekki búið

Stöðugleikasamningurinn markaði vatnaskil á vinnumarkaði þar sem hóflegum launahækkunum til fjögurra ára er ætlað að skapa skilyrði fyrir stöðugleika. Aðilar vinnumarkaðarins lögðu þannig sitt af mörkum til efnahagslegs stöðugleika komandi ára.

Stöðugleiki kemur hins vegar ekki af sjálfu sér þrátt fyrir góða niðurstöðu kjarasamninga. Horfa þarf fram á veginn og tryggja að kjarasamningar verði til þess að draga úr verðbólguþrýstingi, en ekki öfugt.

Atvinnulíf og stjórnvöld þurfa að rísa undir sinni ábyrgð og vera samtaka. Þannig er hægt að ná tökum á verðbólgunni og eygja von um lækkun vaxta.

Á þessum grunni hefja Samtök atvinnulífsins eftirfylgni við kjarasamninga, með hækkandi sól, undir yfirskriftinni Stöðugleikarnir .

Sofnum ekki á verðinum. Verkefnið er ekki búið. Verum samtaka um aukna hagsæld.

Skráðu þig á Stöðugleikana

Akureyri | Mánudaginn 29. apríl | Hamraborg - Svarti kassinn - Hofi | 11:30 – 13:30 | Hádegisverður

Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra, Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags Þingeyinga, og Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI og varaformaður SA, taka þátt í umræðum undir stjórn Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins.

Þá flytja Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa og Vilborg Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Bravo ehf. og kaupmaður í Centró á Akureyri, hugvekjur.

Nauðsynlegt er að skrá sig hér

Reykjavík | Þriðjudaginn 30. apríl | Norðurljós - Harpa | 11:30 – 13:30 | Hádegisverður

Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra, Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, og Jónína Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Coripharma, taka þátt í umræðum undir stjórn Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins.

Þá flytja Finnur Oddsson, forstjóri Haga og Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO, hugvekjur.

Nauðsynlegt er að skrá sig hér

Samtök atvinnulífsins