Efnahagsmál - 

10. september 2009

Starfshópur um samfélagslega ábyrgð

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Starfshópur um samfélagslega ábyrgð

Ákveðið hefur verið að Samtök atvinnulífsins verði tengiliður á Íslandi við Global Compact verkefni Sameinuðu þjóðanna. Með verkefninu vilja SÞ hvetja fyrirtæki til að sýna samfélagslega ábyrgð í verki með því að tileinka sér tíu viðmið. Um þessar mundir taka þátt í verkefninu 4.700 fyrirtæki um allan heim og þar af eru um 400 á Norðurlöndum. Skipaður verður starfshópur um samfélagslega ábyrgð á vegum SA og stýrir Hörður Vilberg hópnum.

Ákveðið hefur verið að Samtök atvinnulífsins verði tengiliður á Íslandi við Global Compact verkefni Sameinuðu þjóðanna. Með verkefninu vilja SÞ hvetja fyrirtæki til að sýna samfélagslega ábyrgð í verki með því að tileinka sér tíu viðmið. Um þessar mundir taka þátt í verkefninu 4.700 fyrirtæki um allan heim og þar af eru um 400 á Norðurlöndum. Skipaður verður starfshópur um samfélagslega ábyrgð á vegum SA og stýrir Hörður Vilberg hópnum.

Félagar í Samtökum atvinnulífisins sem eru áhugasamir um að taka þátt í starfi hópsins geta haft samband við Hörð Vilberg í síma 591-0005 eða sent póst á hordur@sa.is. Nánari upplýsingar um Global Compact má nálgast hér að neðan.

Sameinuðu þjóðirnar hleyptu Global Compact verkefninu af stokkunum í júlí árið 2000. Fyrirtæki sem taka þátt gangast undir viðmið Global Compact og skila inn skýrslu um hvernig tekst að upp uppfylla þau. Verkefnið er í senn alþjóðlegt og staðbundið og það hentar jafnt stórum og smáum fyrirtækjum.  

Fyrirtæki sem taka þátt í verkefninu sýna með því ábyrgð og gera grein fyrir henni opinberlega. Þau geta jafnframt gert viðskiptavinum sínum grein fyrir þátttökunni, bæði birgjum og kaupendum, og staðfest með því að þau vilji sýna samfélagslega ábyrgð í verki.

Samtök atvinnulífsins hvetja fyrirtæki til að gerast aðilar að Global Compact verkefni SÞ en í því felst auk þess að tileinka sér viðmið verkefnisins að kynna verkefnið og aðstoða þau fyrirtæki sem vilja gerast aðilar ásamt því að vera tengiliður við alþjóðlegt og norrænt net þátttakenda.

Á Norðurlöndum gegna NHO -samtök atvinnulífsins í Noregi og DI - samtök iðnaðarins í Danmörku svipuðu hlutverki gagnvart Global Compact og SA hefur nú tekið að sér hér á landi.

Viðmið Global Compact eru eftirfarandi:

MANNRÉTTINDI

Viðmið 1     
Fyrirtæki styðja og virða vernd alþjóðlegra mannréttinda. 

Viðmið 2     
Fyrirtæki fullvissa sig um að þau gerist ekki meðsek um mannréttindabrot.

VINNUMARKAÐUR

Viðmið 3     
Fyrirtæki styðja við félagafrelsi og viðurkenna í raun rétt til kjarasamninga.

Viðmið 4     
Fyrirtæki tryggja afnám allrar nauðungar- og þrælkunarvinnu.

Viðmið 5     
Virkt afnám allrar barnavinnu er tryggt.

Viðmið 6     
Fyrirtæki styðja afnám misréttis til vinnu og starfsvals.

UMHVERFI

Viðmið 7
Fyrirtæki styðja beitingu varúðarreglu í umhverfismálum.

Viðmið 8
Fyrirtæki hafi frumkvæði að því að hvetja til aukinnar ábyrgðar gagnvart umhverfinu.

Viðmið 9
Fyrirtæki hvetji til þróunar og nýtingar á umhverfisvænni tækni.

GEGN SPILLINGU

Viðmið 10
Fyrirtæki vinni gegn hvers kyns spillingu, þar með talið kúgun og mútum.

Nánari upplýsingar má finna á neðangreindum vefsíðum:


http://www.unglobalcompact.org/


http://www.gcnordic.net/

Samtök atvinnulífsins