02. júní 2026

Skylda til jafnlaunavottunar afnumin

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Skylda til jafnlaunavottunar afnumin

Alþingi samþykkti í gær lög um afnám skyldu til jafnlaunavottunar og verður jafnlaunavottun því valkvæð líkt og upphaflega var ætlunin með hönnun jafnlaunastaðalsins. Samtök atvinnulífsins hafa lengi bent á að jafnlaunavottun sé ekki til þess fallin að útrýma kynbundnum launamun á vinnumarkaði og fagna samþykkt frumvarpsins innilega.

Áfram verður skylda fyrir fyrirtæki og stofnanir af tiltekinni stærð að skila inn gögnum um starfaflokkun ásamt launagreiningu til að sýna fram á að launasetning þeirra byggist á málefnalegum sjónarmiðum og að þau viðmið sem lögð eru til grundvallar feli ekki í sér kynbundna mismunun og tryggi þannig að laun séu ákvörðuð á sama hátt fyrir alla óháð kyni. Samtökin vona að nýsamþykkt lög séu fyrsta skrefið í átt að því að fallið verði alfarið frá kvöðum um skýrslugjöf fyrirtækja vegna jafnlaunakerfisins og að frekar verði horft til annarra og minna íþyngjandi leiða til að sporna við launamismunun á grundvelli kyns.

Samtökin létu framkvæma könnun árið 2024 þar sem fram kom að kostnaður fyrirtækja við innleiðingu jafnlaunavottunar- eða staðfestingar næmi að meðaltali 2,7 milljónum króna. Miðað við þann fjölda fyrirtækja sem þegar hefur hlotið jafnlaunavottun eða -staðfestingu má gera ráð fyrir að beinn kostnaður atvinnulífsins hlaupi þegar á um 5-6 milljörðum króna miðað við eigin mat fyrirtækjanna. Viðhorf félagsmanna samtakanna var jafnframt nokkuð afgerandi neikvætt og innan við fjórðungur þeirra töldu ávinninginn af jafnlaunaferlinu vera meiri en kostnaðinn. Þá hafa rannsóknir gefið til kynna að þrátt fyrir kostnaðarsama framkvæmd hafi stjórnendur litla trú á tilætluðum árangri staðalsins enda byggi viðmið að hluta á huglægu mati hvers og eins atvinnurekanda.

Samtökin leggja ríka áherslu á jafnréttismál og telja að í kynbundinni mismunun felist slæmir stjórnarhættir sem dragi úr samkeppnishæfni. Aukið jafnrétti og aukin atvinnuþátttaka, ekki síst kvenna, stuðli að auknum hagvexti og þar með bættum lífskjörum. Samtökin hafa aftur á móti lengi kallað eftir því að íþyngjandi kvaðir sem skila takmörkuðum árangri séu settar á fyrirtæki. Ný lög um afnám skyldu til jafnlaunavottunar eru því mikið fagnaðarefni og gefa vonandi fyrirheit um aukna viðleitni löggjafans til þess að létta byrðar atvinnulífsins svo efla megi samkeppnishæfni og verðmætasköpun íslenskra fyrirtækja.

Samtök atvinnulífsins