Efnahagsmál - 

29. september 2009

Skaðlegar skattahugmyndir

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Skaðlegar skattahugmyndir

Forsætisráðherra hefur boðað skattahækkanir á atvinnulífið, þ.m.t. nýja skatta á borð við orku-, umhverfis- og auðlindaskatta. Þótt ekki liggi fyrir á þessari stundu hvernig þessir skattar verði útfærðir þá er ljóst að eðli þeirra er að skattleggja kostnað fyrirtækjanna og skattgreiðslur verða þar með óháðar afkomu. Slík skattheimta dregur úr samkeppnishæfni fyrirtækjanna gagnvart erlendum keppinautum og möguleikum þeirra til þess að hafa starfsmenn í vinnu og greiða laun. Verði þessum áformum hrint í framkvæmd er veruleg hætta á því að þeir fjárfestingarkostir sem erlend fyrirtæki hafa haft til skoðunar hér á landi verði endurmetnir og hugsanlega slegnir af. Samtök aðila í atvinnurekstri vara við skattastefnu stjórnvalda, enda vinnur hún gegn markmiðum um endurreisn hagkerfisins, hærra atvinnustigi og uppbyggingu sterks og sjálfbærs velferðarkerfis.

Forsætisráðherra hefur boðað skattahækkanir á atvinnulífið, þ.m.t. nýja skatta á borð við orku-, umhverfis- og auðlindaskatta. Þótt ekki liggi fyrir á þessari stundu hvernig þessir skattar verði útfærðir þá er ljóst að eðli þeirra er að skattleggja kostnað fyrirtækjanna og skattgreiðslur verða þar með óháðar afkomu. Slík skattheimta dregur úr samkeppnishæfni fyrirtækjanna gagnvart erlendum keppinautum og möguleikum þeirra til þess að hafa starfsmenn í vinnu og greiða laun. Verði  þessum áformum hrint í framkvæmd er veruleg hætta á því að þeir fjárfestingarkostir sem erlend fyrirtæki hafa haft til skoðunar hér á landi verði endurmetnir og hugsanlega slegnir af.
 
Samtök aðila í atvinnurekstri vara við skattastefnu stjórnvalda, enda vinnur hún gegn markmiðum um endurreisn hagkerfisins, hærra atvinnustigi og uppbyggingu sterks og sjálfbærs velferðarkerfis. 

Sjá ályktun Samtaka atvinnulífsins, aðildarfélaga þess og Viðskiptaráðs Íslands

Samtök atvinnulífsins