Efnahagsmál - 

24. ágúst 2011

Sjávarútvegsfrumvarp stenst ekki stjórnarskrá og leiðir til fjöldagjaldþrota

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Sjávarútvegsfrumvarp stenst ekki stjórnarskrá og leiðir til fjöldagjaldþrota

Samtök atvinnulífsins (SA), Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og Samtök fiskvinnslustöðva (SF) hafa sent sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis umsögn um sjávarútvegsfrumvarp ríkisstjórnarinnar sem er til umfjöllunar hjá Alþingi.

Í umsögninni er bent á að verði frumvarpið að lögum muni sjávarútvegsfyrirtækin gjaldfæra samstundis allar eignfærðar aflaheimildir. Þetta mun lækka eigið fé greinarinnar um 180 milljarða króna og leiða til fjöldagjaldþrota í greininni. Einnig hefur frumvarpið þau áhrif að lækka mögulegar skatttekjur ríkissjóðs um marga milljarða króna.

Upptaka ríkisins á aflaheimildum stenst ekki ákvæði stjórnarskrárinnar um vernd eignaréttarins. Réttindin sem felast í aflaheimildum verða því ekki tekin af fyrirtækjunum bótalaust. Í umsögn SA, LÍÚ og SF er bent á að markmið frumvarpsins sé m.a. að kollvarpa rekstri sjávarútvegsfyrirtækja, stórauka skattheimtu, auka pólitísk afskipti af greininni og grafa undan ábyrgri og sjálfbærri nýtingu fiskistofna.   

Með umsögninni fylgja álitsgerðir LEX lögmannsstofu og endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte hf. sem styðja það álit sem samtökin setja fram í umsögn sinni.

Sjá nánar:

Umsögn SA, LÍÚ og SF ásamt álitsgerðum LEX og Deloitte

Umfjöllun á vef LÍÚ

Samtök atvinnulífsins