Fréttir - 

26. september 2018

Sjávarútvegsdagurinn 2018

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Sjávarútvegsdagurinn 2018

Lítill fiskur í stórri tjörn - samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs

Lítill fiskur í stórri tjörn - samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs

Sjávarútvegsdagurinn, í samstarfi Deloitte, Samtaka atvinnulífsins og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, verður haldinn miðvikudaginn 26. september í Hörpu kl. 8.30-10.

Farið verður yfir afkomu sjávarútvegsfyrirtækja á árinu 2017 og samkeppnishæfni þeirra á alþjóðlegum markaði, en um 98% af afla af Íslandsmiðum er seldur þar.

DAGSKRÁ

Opnunarávarp
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra

Sjávarútvegsgagnagrunnur Deloitte árið 2017
Jónas Gestur Jónasson, löggiltur endurskoðandi og meðeigandi Deloitte

Framtíðarhlutverk sjávarútvegs í íslensku efnahagslífi
Ásgeir Jónsson, deildarforseti Hagfræðideildar Háskóla Íslands

Skip án stefnu siglir í strand
Páll Snorrason, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrarsviðs Eskju

Samantekt
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS

Fundarstjóri er Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, viðskiptastjóri í sjávarútvegsteymi Arion banka.

Þátttökugjald er kr. 3.500 með léttum morgunverði sem er borinn fram frá kl. 8.00. Ráðstefnan fer fram í Norðurljósasal Hörpu.

Skráning með tölvupósti á skraning@deloitte.is

Samtök atvinnulífsins