Samkeppnishæfni - 

24. nóvember 2021

Sjálfbærnidagur atvinnulífsins: Eru viðskiptatækifæri í kolefnishlutleysi?

Efnahagsumgjörð

Orkumál

Umhverfismál

Samfélagsábyrgð

Efnahagsumgjörð

Orkumál

Umhverfismál

Samfélagsábyrgð

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Sjálfbærnidagur atvinnulífsins: Eru viðskiptatækifæri í kolefnishlutleysi?

„Viðskiptavinir eru líklegri til að kaupa þjónustu af fyrirtækjum sem hafa jákvæð áhrif á umhverfi sitt og samfélag. Þessari þróun mun aðeins vaxa ásmegin“ - Edward Sims, sjálfbærnisérfræðingur EY í Evrópu

 

„Viðskiptavinir eru líklegri til að kaupa þjónustu af fyrirtækjum sem hafa jákvæð áhrif á umhverfi sitt og samfélag. Þessari þróun mun aðeins vaxa ásmegin“
- Edward Sims, sjálfbærnisérfræðingur EY í Evrópu

Samtök atvinnulífsins og EY á Íslandi taka höndum saman og setja á laggirnar árlegan Sjálfbærnidag atvinnulífsins þar sem fyrirtæki á Íslandi geta sótt sér nýjustu þekkingu sem nýtist þeim í rekstri út frá sjálfbærni og UFS viðmiðum.

Sjálfbærnidagurinn fer fram í fyrsta sinn 24. nóvember 2021 frá 09:00 - 12:30 með veglegri dagskrá og vinnustofu í Hörpu. Í ár er sjónum beint að kolefnishlutleysi. 

Athugið: Viðburðurinn fer fram í raunheimum en er einnig streymt. Vinnustofan fer aðeins fram í raunheimum. 

Við bendum góðfúslega á að nýjustu sóttvarnartakmarkanir og smitvarnir kveða á um grímuskyldu og framvísun neikvæðs hraðprófs. Við mælum með að fólk fari í hraðpróf með eins góðum fyrirvara og hægt er, helst daginn á undan og nýta allar þær hraðprófsstöðvar sem eru í boði á höfuðborgasvæðinu.  

covidtest.is 

Hraðpróf vegna viðburðar

Aðalfyrirlesari dagsins er Edward Sims sjálfbærnisérfræðingur EY í Evrópu. Sims var áður faglegur pólitískur ráðgjafi á evrópska þinginu og fyrirtækjaráðgjafi hjá Oakdene Hollins, sem sérhæfði sig í hringrásarhagkerfinu og nýsköpunarstefnu.  Sims hefur þar að auki sérhæfða þekkingu á hráefnum, úrgangi, orku og sjálfbærum fjármálum. Sims á að baki langan feril í veigamiklum verkefnum fyrir stjórnvöld, hagsmunasamtök og fyrirtæki ásamt því að skarta akademískum bakgrunni í hagfræði, stjórnmálum og opinberri stjórnsýslu.

Dagskrána má lesa nánar hér neðar. 

Hér má skrá sig á fundinn:

Umsóknarferli er lokið.

Dagskrá

Ávarp

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra 

Hvernig undirbýr atvinnulífið sig fyrir „kapphlaupið að kolefnishlutleysi?”

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Hvað er kolefnishlutleysi og af hverju skiptir það máli fyrir íslensk fyrirtæki?

Gunnar S. Magnússon, meðeigandi og sviðsstjóri sjálfbærni EY á Íslandi

Ný viðskiptatækifæri með kolefnismörkuðum og hringrásarhagkerfi

Edward Sims, sjálfbærnisérfræðingur EY í Evrópu

Fjárfesting í kolefnishlutleysi mun skila sér í betri rekstri

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar

Pallborðsumræður: Hvað þurfa íslensk fyrirtæki að gera til að vera með?

  • Dr. Snjólaug Ólafsdóttir, yfirverkefnastjóri sjálfbærni hjá EY
  • Björgvin Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri YGG Carbon
  • Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri nýsköpunar, samfélagsábyrgðar og fjárfestatengsla BRIM
  • Maron Kristófersson, framkvæmdastjóri Aha.is

Umræðum stýrir Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri á Samkeppnishæfnisviði SA

Hressing

Vinnustofa: Hringrásarhagkerfi í átt að kolefnishlutleysi

Vinnustofa með Edward Sims og Dr. Snjólaugu Ólafsdóttur, sérfræðingum í sjálfbærni hjá EY

    • Hvernig getur innleiðing á hringrásarhagkerfi dregið úr kolefnislosun?
    • Hagnýt dæmi frá leiðandi erlendum fyrirtækjum á þessu sviði (litlum sem stórum)

Sjálfbærnidagurinn er hluti af Loftslagsþrennunni 

Sjálfbærnidagur atvinnulífsins 24. nóvember

Loftslagsfundur Festu og Reykjavíkurborgar 2021 19. nóvember – Festa (samfelagsabyrgd.is)

Kapphlaup að kolefnishlutleysi - Breska sendiráðið á Íslandi í samstarfi við Bresk-íslenska viðskiptaráðið, Reykjavíkurborg, Grænvang, Samtök iðnaðarins og Festu 21. október (viðburður liðinn) 

Samtök atvinnulífsins