Fréttir - 

12. júní 2023

Sigríður Margrét Oddsdóttir ráðin framkvæmdastjóri SA

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Sigríður Margrét Oddsdóttir ráðin framkvæmdastjóri SA

Sigríður Margrét Oddsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og mun hún hefja störf í september. Þá mun hún jafnframt láta af störfum sem forstjóri Lyfju.

Sigríður hefur starfað sem framkvæmdastjóri og forstjóri íslenskra fyrirtækja í tæp tuttugu ár. Sigríður hefur auk þess setið í stjórnum margra íslenskra fyrirtækja og hagsmunasamtaka. Sigríður er með B.Sc. gráðu í rekstrarfræðum frá Háskólanum á Akureyri og hefur einnig sótt stjórnendanámskeið hjá IESE Business School og Harvard.

„Öflugt atvinnulíf þýðir að lífskjör á Íslandi verða áfram með því besta sem þekkist í heiminum. Það er heiður að vera í forsvari fyrir Samtök atvinnulífsins, vinna með atvinnurekendum og þeim öfluga hópi fólks sem starfar hjá samtökunum. Verkefnin framundan eru brýn, ekki bara fyrir íslenskt atvinnulíf heldur samfélagið allt og ég er þakklát fyrir að fá tækifæri til að leggja mitt af mörkum,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir.

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er mikil, verðbólga er há, vextir eru háir og kjarasamningar á almennum vinnumarkaði eru lausir eftir 7 mánuði. Aðilar vinnumarkaðarins hafa átt í ágætu samtali allt frá því að núgildandi skammtímasamningar voru undirritaðir. En það er verk að vinna. Við náum ekki árangri nema með samstarfi, samtali og sameiginlegri sýn, stjórn Samtaka atvinnulífsins er sammála um það og við fögnum því að fá til liðs við okkur reynslumikinn stjórnanda,“ segir Eyjólfur Árni Rafnsson formaður Samtaka atvinnulífsins.

Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mun sinna hlutverki framkvæmdastjóra SA þarf til Sigríður Margrét tekur við.

Nánari upplýsingar veita:

  • Sigríður Margrét Oddsdóttir, verðandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
    í síma 898 7166
  • Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins í síma 842 3013

Samtök atvinnulífsins eru heildarsamtök íslensks atvinnulífs með sex aðildarsamtökum sem byggja á ólíkum atvinnugreinum. Yfir 2.000 fyrirtæki eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins, allt frá sjálfstætt starfandi frumkvöðlum til stærstu fyrirtækja landsins. Hjá aðildarfyrirtækjum SA starfa um 70% launafólks á almennum vinnumarkaði.

Samtök atvinnulífsins