Vinnumarkaður - 

05. nóvember 2012

Samtök atvinnulífsins styðja LÍU

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Samtök atvinnulífsins styðja LÍU

Stjórn Samtaka atvinnulífsins fjallaði á fundi sínum í dag um kjaradeilu LÍU og sjómanna en mikill vandi hefur skapast vegna stórfelldra hækkana á sköttum og veiðigjöldum. Útgerðir geta ekki brugðist við með því að ná niður launakostnaði á móti slíkum hækkunum nema í gegnum kjarasamninga. LÍÚ telur að engar líkur séu til að niðurstaða fáist í kjaradeiluna á annan hátt en að til vinnustöðvunar komi.

Aðalfundur LÍÚ samþykkti að hefja þann feril að efna til atkvæðagreiðslu um verkbann og nú hefur stjórn SA samþykkt heimild fyrir LÍÚ til slíkrar atkvæðagreiðslu.

Á fundi stjórnar SA í dag var samþykkt efirfarandi ályktun:

"Stjórn SA heimilar Landssambandi íslenskra útvegsmanna að taka ákvörðun um verkbann sem nær til sjómanna sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum sambandsins. Um þá ákvörðun sem byggir á atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna fer samkvæmt samþykktum LÍÚ."

Ályktunin er gerð í samræmi við ákvæði í samþykktum SA þar sem stjórnin getur heimilað aðildarsamtökum sínum að boða verkbann.

Samtök atvinnulífsins