Efnahagsmál - 

10. mars 2008

Samtök atvinnulífsins samþykkja nýja kjarasamninga

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýja kjarasamninga sem SA undirrituðu við meginþorra stéttarfélaga innan ASÍ þann 17. febrúar síðastliðinn fór fram í vikunni 3.-7 mars meðal aðildarfyrirtækja SA. Samningarnir voru samþykktir með 88% greiddra atkvæða, 9,7% atkvæða voru greidd gegn samningunum en 2,3% tóku ekki afstöðu. Kosningaþátttaka var 38,2%.

Atkvæðagreiðslan gildir um kjarasamninga sem gerðir hafa verið við eftirfarandi sambönd og félög: Starfsgreinasambandið, Flóabandalagið, Verslunarmenn (VR/LÍV), Rafiðnaðarsamband Íslands, Samiðn, Félag bókagerðar­manna (FBM), Félag vélstjóra- og málmtæknimanna (VM) og Matvís.

Samtök atvinnulífsins