08. apríl 2022

Morgunverðarfundur um málefni fólks með skerta starfsgetu

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Morgunverðarfundur um málefni fólks með skerta starfsgetu

Samtök atvinnulífsins, Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands í samstarfi við Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið bjóða til morgunverðarfundar um atvinnumál fólks með skerta starfsgetu, mánudaginn 11. apríl kl. 8:30 í Húsi atvinnulífsins.

Samtök atvinnulífsins, Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands í samstarfi við Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið bjóða til morgunverðarfundar um atvinnumál fólks með skerta starfsgetu. Fundurinn fer fram í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, þann 11. apríl kl. 8:30.

Dagskrá:
Sara Dögg Svanhildardóttir verkefnastjóri hjá Landssamtökunum Þroskahjálp og Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður ÖBÍ bjóða gesti velkomna.

Ávarp ráðherra - Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra

Stuðningur við endurkomu á vinnumarkað - Anna Lóa Ólafsdóttir, sérfræðingur og Svandís Nína Jónsdóttir, verkefnastjóri, VIRK

Project SEARCH. Ný leið í átt að fullgildri atvinnuþátttöku - Valgerður Unnarsdóttir, forstöðumaður, Ás styrktarfélag

Tækifærin í samstarfi - Laufey Gunnlaugsdóttir, deildarstjóri Ráðgjafar og vinnumiðlunarsvið Vinnumálastofnunar

Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið - Gunnur Líf Gunnarsdóttir, mannauðsstjóri Samkaupa

,,Allir með“ - Halldór Friðrik Þorsteinsson – framkvæmdastjóri Alfreð ehf/ afred.is

Atvinnulífið á verkefni fyrir alla - Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins

Skráning á viðburðinn fer fram hér.

Samtök atvinnulífsins