Fréttir - 

16. september 2019

Samtök atvinnulífsins 20 ára

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Samtök atvinnulífsins 20 ára

Þann 15. september árið 1999 voru Samtök atvinnulífsins stofnuð og eru samtökin því orðin 20 ára. Tímamótunum verður fagnað á Ársfundi atvinnulífsins sem fram fer í Hörpu þann 17. október næstkomandi. Gestir ársfundarins fá eintak af nýrri bók Guðmundar Magnússonar um sögu Samtaka atvinnulífsins 1999-2019 þar sem rakin er áhugaverð saga vinnumarkaðar og efnahagslífs síðustu tveggja áratuga.

Um upphaf Samtaka atvinnulífsins segir Guðmundur:

„Samtök atvinnulífsins voru stofnuð haustið 1999 með samruna Vinnuveitendasambands Íslands og Vinnumálasambandsins. Jafnframt urðu nokkrar breytingar á vettvangi atvinnugreinafélaga. Með stofnun samtakanna var brugðist við þjóðfélagsbreytingum og viðhorfum sem kölluðu á endurmat á starfsháttum og skipulagi samtaka atvinnurekenda.

Stofnun Samtaka atvinnulífsins haustið 1999 var á sinn hátt tímanna tákn. Mikil gerjun hafði verið í íslensku samfélagi árin þar á undan. Stakkaskipti urðu á mörgum sviðum þjóðlífsins, ekki síst í starfsumhverfi atvinnuveganna.“

Í bókinni er einnig að finna snarpa samantekt á efni bókar Guðmundar Frá kreppu til þjóðarsáttar, þar sem er rakin saga VSÍ frá árinu 1934-1999.

„Rætur Samtaka atvinnulífsins liggja einkum í Vinnuveitendasambandinu, heildarsamtökum atvinnurekenda, sem starfaði á árunum 1934 til 1999. Frá VSÍ eru komnar margar þær hefðir og venjur sem starf SA byggir á. Með VSÍ eignuðust atvinnurekendur mikilvægan vettvang til að verja og gæta hagsmuna sinna, en þó lengst af í miklum mótbyr. Með þjóðarsáttinni 1990, sem VSÍ og Alþýðusamband Íslands, heildarsamtök verkalýðsfélaganna, höfðu forgöngu um urðu vatnaskil á íslenskum vinnumarkaði.“

Afmælinu verður fagnað þann 17. október sem fram fer í Hörpu kl. 14-16 þar sem allir eru velkomnir.

Meðal þeirra sem ávarpa fundinn eru formaður Samtaka atvinnulífsins, Eyjólfur Árni Rafnsson, og forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir. Hægt er að tryggja sér sæti með því að skrá sig hér að neðan.

ÁRSFUNDUR ATVINNULÍFSINS 2019 - SKRÁNING

Umsóknarferli er lokið.

Samtök atvinnulífsins