04. mars 2026

SA og ASÍ kalla eftir skýrara hlutverki Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

SA og ASÍ kalla eftir skýrara hlutverki Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hafa sent inn sameiginlega umsögn um drög að tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2026–2029. Samtökin fagna því að sett sé fram heildstæð framkvæmdaáætlun og lýsa vilja til virks samráðs við stjórnvöld um framgang hennar.

Í umsögninni er þó bent á að hlutverk og ábyrgð Fræðslumiðstöðvarinnar séu óskýr í fyrirliggjandi drögum. Fræðslumiðstöðin gegnir lykilhlutverki í framhaldsfræðslukerfinu á grundvelli þjónustusamnings við mennta- og barnamálaráðuneytið og hefur víðtæka reynslu af þróun náms, raunfærnimats og ráðgjafar fyrir fólk á vinnumarkaði, þar á meðal innflytjendur. Árið 2024 voru innflytjendur 51% þátttakenda í námi innan framhaldsfræðslunnar og hefur hlutfallið hækkað hratt undanfarin ár.

Sérstök áhersla er lögð á að byggt verði á þeim verkfærum og innviðum sem þegar eru til staðar, meðal annars í gegnum fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar um land allt. Þar er boðið upp á fjölbreytt íslenskunám, starfstengdar námsleiðir og raunfærnimat sem styður við virkni og þátttöku á vinnumarkaði. Þá benda samtökin á mikilvægi Fagbréfa atvinnulífsins sem viðurkenndrar leiðar til að staðfesta hæfni í starfi og efla inngildingu.

Einnig er kallað eftir skýrari verkaskiptingu milli Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Vinnumálastofnunar og annarra aðila, auk þess sem lögð er áhersla á að nýta betur þá tölfræði og þekkingu sem Fræðslumiðstöðin býr yfir.

SA og ASÍ telja að með nánara samstarfi og markvissu samráði megi styrkja innviði fræðslu fyrir innflytjendur og stuðla að aukinni þátttöku þeirra í námi, starfi og samfélagi.

Samtök atvinnulífsins