1 MIN
Opnað fyrir tilnefningar til menntaverðlauna
Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent á Menntadegi atvinnulífsins sem fer fram á Hilton Reykjavík Nordica 11. febrúar 2026.
Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála.
- Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf.
- Einungis er hægt að tilnefna aðildarfélaga innan SA.
Tilnefningar berist eigi síðar en föstudaginn 16. janúar.
Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum, menntafyrirtæki ársins og menntasproti ársins.
Menntafyrirtæki ársins 2026
Við mat á umsóknum er lögð sérstök áhersla á íslenskt framlag við þróun, aðlögun og innleiðingu verkefna, sem og hvernig fræðslan innan fyrirtækja mætir þörfum íslensks vinnumarkaðar. Einnig er tekið tillit til verkefna sem byggja á alþjóðlegri fræðslu, að því gefnu að framlag Íslendinga til þróunar, aðlögunar og innleiðingar sé skýrt og að verkefnið styðji við þarfir vinnumarkaðarins hér á landi.
· Stefna og framtíðarsýn fyrirtækisins í fræðslumálum
· Aðgengi og þátttaka starfsfólks í fræðslu
· Fræðsluleiðir
· Mat á árnagri
Menntasproti ársins 2026
Leitað er eftir verkefnum sem stuðla að nýsköpun í fræðslu sem styrkir starfsfólk og fyrirtæki á íslenskum vinnumarkaði.
· Nýsköpun og þróun
· Aðgengi og fjölbreytt notkun
· Framtíðarsýn og áhrif
Nánari útlistun viðmiða er að finna í tilnefningarforminu
Menntadagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku.

Arion banki að taka við menntaverðlaununum 2025