Efnahagsmál - 

14. september 2010

Opinn fundur um skattamál fyrirtækja 23. september

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands efna til opins morgunverðarfundar um skattamál fyrirtækja fimmtudaginn 23. september nk. á Hótel Nordica. Þar munu samtökin leggja fram og kynna tillögur að umbótum á skattkerfinu sem miða að því að efla fjárfestingar, stuðla að sköpun nýrra starfa og bæta lífskjör landsmanna. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, mun bregðast við tillögunum, auk þess sem stjórnendur úr atvinnulífinu og skattasérfræðingar munu ræða raunveruleg dæmi um það sem þarf að laga til að endurreisn atvinnulífsins geti hafist.

Fundurinn hefst kl. 8:30 og verður lokið kl. 10:00. Léttur morgunverður og kaffi frá kl. 8:00.

Þátttakendur fá eintak af nýju riti Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs um nauðsynlegar umbætur á skattamálum fyrirtækja.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞÁTTTÖKU

Samtök atvinnulífsins