Fréttir - 

01. nóvember 2021

Opið fyrir tilnefningar til Hvatningarverðlauna jafnréttismála 2021

Jafnréttismál

Jafnréttismál

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Opið fyrir tilnefningar til Hvatningarverðlauna jafnréttismála 2021

Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna jafnréttismála 2021 en hægt er að skila inn tilnefningum til og með 19. nóvember. Flokkum í Hvatningarverðlaununum hefur nú fjölgað í þrjá og er þeirri nýbreytni ætlað að mæta samtímaþróun á víðtækari skilgreiningu jafnréttis og fjölbreytileika. Því verða verðlaunin veitt í þremur flokkum, með áherslu á kynjajafnrétti, fjölmenningu og fötlun.

Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna jafnréttismála 2021 en hægt er að skila inn tilnefningum til og með 19. nóvember. Flokkum í Hvatningarverðlaununum hefur nú fjölgað í þrjá og er þeirri nýbreytni ætlað að mæta samtímaþróun á víðtækari skilgreiningu jafnréttis og fjölbreytileika. Því verða verðlaunin veitt í þremur flokkum, með áherslu á kynjajafnrétti, fjölmenningu og fötlun.

Samtök atvinnulífsins og Háskóli Íslands standa að verðlaununum.

Markmiðið með Hvatningarverðlaunum jafnréttismála er að vekja athygli á fyrirtækjum, sem sett hafa jafnrétti á oddinn og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til þess að gera slíkt hið sama. Stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja sem skapað hafa góða fyrirtækjamenningu þar sem jafnrétti og virðing fyrir fjölbreytileika samfélagsins liggur til grundvallar eru hvattir til að senda inn tilnefningu.

Tilnefningar berist hér neðar á skráningarformi til og með 19. nóvember.

Ath. Einungis er hægt að tilnefna skráða félagsmenn Samtaka atvinnulífsins til Hvatningarverðlauna jafnréttismála.

Verðlaunin eru nú veitt í níunda sinn, en árið 2020 voru það Sjóvá og Pink Iceland sem hlutu verðlaunin.

Verðlaunin eru afhent við hátíðlega athöfn í Hátíðarsal Háskóla Íslands sem fram fer 30. nóvember.

Viðmið dómnefndar 2021

Leitað er eftir tilnefningum fyrirtækja sem leggja áherslu á neðangreinda þætti í sinni starfsemi:

  • Tekið er mið af jafnréttismálum í allri stefnumótun fyrirtækisins.
  • Unnið hefur verið að því að skapa góða fyrirtækjamenningu þar sem jafnrétti og virðing fyrir fjölbreytileika samfélagsins liggja til grundvallar.
  • Horft er til jafnréttis í víðum skilningi, m.a. kynja, tækifæra innflytjenda, fatlaðs fólks og hinsegin fólks á vettvangi fyrirtækis.
  • Aukinni vitund um þann ávinning sem jafnrétti í víðtækri merkingu hefur fyrir fyrirtækið og samfélagið.
  • Fyrirtækið hefur lagt áherslu á samfélagslega ábyrgð og tekist á við áskoranir nútímans, m.a. mannréttindi, loftslagsmál og fátækt.

Veitt verða verðlaun í þremur flokkum, með áherslu á kynjajafnrétti, fjölmenningu og fötlun.

Sérstaklega er leitað að fyrirtækjum sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:  

Kynjajafnrétti

  • Fyrirtækið hefur stefnu, skýran tilgang og markmið í jafnréttismálum.
  • Jafnréttismál eru þverlæg í heildarstefnu fyrirtækisins.
  • Kynjajafnrétti hefur fest rætur í fyrirtækinu.
  • Sýnt hefur verið fram á mælanlegan árangur af þeim markmiðum og aðgerðum sem fyrirtækið hefur sett sér um kynjajafnrétti.
  • Hlutföll kynja í stjórn, stjórnendastöðum og öðrum lykilstöðum fyrirtækisins eru jöfn.
  • Kyn hafa jafna möguleika til starfsframa, m.a. þannig að starfsfólk af öllum kynjum sé hvatt til að nýta sér rétt sinn til fæðingarorlofs.
  • Vakin er athygli á rekstrarlegum ávinningi af jafnrétti á vinnustað.
  • Fyrirtækið leggur áherslu á góðan aðbúnað og vinnuskilyrði starfsfólks af öllum kynjum.
  • Fyrirtækið hefur sýnt frumkvæði og nýsköpun sem stuðlar að jafnrétti allra kynja.
Umsóknarferli er lokið.

Fjölmenning

  • Fyrirtækið hefur stefnu,skýran tilgang og markmið í málefnum starfsmanna af erlendum uppruna.
  • Markmið um fjölbreytni og fjölmenningu má finna í heildarstefnu fyrirtækisins.
  • Fjölbreytni í starfsmannavali hefur fest rætur í fyrirtækinu.
  • Sýnt hefur verið fram á mælanlegan árangur af þeim markmiðum og aðgerðum sem fyrirtækið hefur sett sér í málefnum starfsmanna af erlendum uppruna.
  • Vakin er athygli á rekstrarlegum ávinningi af fjölbreytni/fjölmenningu á vinnustað.
  • Fyrirtækið hefur lagt áherslu á góðan aðbúnað og vinnuskilyrði starfsfólks af erlendum uppruna.
  • Fyrirtækið sinnir fræðslu og þjálfun starfsfólks af erlendum uppruna og setur sér skýr markmið því tengdu
  • Fyrirtækið hefur sýnt frumkvæði og stundað nýsköpun sem stuðlar að fjölbreytileika á vinnustaðnum.
Umsóknarferli er lokið.

Atvinnuþátttaka fólks með skerta starfsgetu

  • Fyrirtækið hefur stefnu,skýran tilgang og markmið í málefnum starfsmanna með skerta starfsgetu.
  • Markmið um fjölbreytt starfsmannaval með áherslu á starfsmenn með skerta starfsgetu má finna í heildarstefnu fyrirtækis.
  • Fjölbreytni í starfsmannavali hefur fest rætur í fyrirtækinu.
  • Sýnt hefur verið fram á mælanlegan árangur af þeim markmiðum og aðgerðum sem fyrirtæki hefur sett sér í málefnum starfsmanna með skerta starfsgetu.
  • Vakin er athygli á rekstrarlegum ávinningi af fjölbreytni á vinnustað.
  • Fyrirtækið hefur lagt áherslu á góðan aðbúnað og vinnuskilyrði starfsfólks með skerta starfsgetu.
  • Fyrirtækið hefur sinnir fræðslu og þjálfun starfsmanna með skerta starfsgetu og setur sér skýr markmið því tengdu
  • Fyrirtækið hefur sýnt frumkvæði og stundað nýsköpun sem stuðlar að fjölbreytileika á vinnustaðnum.
Umsóknarferli er lokið.

 

Samtök atvinnulífsins