Vinnumarkaður - 

13. júní 2018

Nýr kjarasamningur SA og VFÍ, SFB, ST

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Nýr kjarasamningur SA og VFÍ, SFB, ST

Nýr kjarasamningur SA og VFÍ, SFB og ST (stéttarfélaga verk-, tækni-, tölvunar- og byggingafræðinga) var undirritaður 11. júní og gildir hann frá 1. júlí 2018. Kjarasamningurinn er ótímabundinn og tekur við af öðrum ótímabundnum samningi sem gerður var árið 2011.

Kjarasamningurinn hefur ekki að geyma ákvæði um tiltekin laun eða launabreytingar en kveðið er á um önnur réttindi áþekkt því sem gerist í öðrum kjarasamningum SA.

Í nýjum samningi hafa verið teknar inn breytingar sem SA hafa samið um við aðildarsamtök ASÍ og aðildarfélög BHM á undanförnum árum og er því um samræmingu að ræða. Í fyrsta sinn er kveðið á um greiðsluskyldu atvinnurekenda í starfsmenntasjóði stéttarfélaganna og nemur gjaldið 0,22% af launum. Fram til þessa hefur gjaldið verið valkvætt en þó greitt af þorra atvinnurekenda.

Sjá nánar:

Nýr samningur SA og VFÍ, SBF, ST (PDF)

Samtök atvinnulífsins